- Advertisement -

Það þarf að bjarga Íslandi

Stjórnmál Róbert Marshall, þingmaður Bjartrar framtíðar, segir á Facebook að það þurfi að bjarga Íslandi

„Það þarf að bjarga Íslandi. Við erum föst í fari átakastjórnmála sem valda stöðnun og hnignun. Umræðan er ónýt og leiðir til lélegra ákvarðana. Þetta hefur aldrei verið jafn augljóst og nú. Það þarf að endurhugsa og endurskipuleggja. Við sem aðhyllumst umbætur og alvöru aðgerðir á sviði umhverfis, jafnréttis, mennta- og heilbrigðismála þurfum að skipa okkur í sveit saman. Við þurfum að útbúa sameiginlega aðgerðaáætlun fyrir næstu kjörtímabil. Stilla sameiginlega uppá lista í öllum kjördæmum og stilla upp ríkisstjórn þar sem hæfileikar, bakgrunnur og verkefni ráða mannvalinu. Ég sé fyrir mér stjórn sem væri að mestu skipaða utanþingsráðherrum sem við kynnum fyrir kosningar og yrði leidd af Katrínu Jakobsdóttur. Verkefnin framundan eru risavaxin og munu reyna á okkur en við getum þetta. Það er von. Björgum Íslandi,“ skrifar þingmaðurinn Róbert Marshall.

Innlegg hans er nýr taktur í umræðunni. Viðbragða er beðið.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: