- Advertisement -

Þeir spáðu dauða og djöfli með EES

Stjórnmál:Þá, sem nú, er barist um stærstu orðin, mestu hrakfaraspárnar. Þegar Alþingi vann að samningnum um EES, voru nokkrir þingmenn afar svartsýnir. Sögðu samning fela í sér valdaframsal. Úr yrði skaði sem aldrei yrði bættur.

Fullyrðingar þess tíma kallast á við það sem nú er sagt.

Hér að neðan eru orð fimm þáverandi þingmanna. Þrír þeirra eru látnir.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Guðni Ágústsson sagði: „Veð gefum 400 milljónum Evrópubúa janfan rétt á við okkur sjálf í eigin landi. Auðlindir til lands og sjávar, jafnt numdar sem ónumdar, eru settar á annes óvissunnar hvað eigarrétt og nýingu varðar.“

Steingrímur J. Sigfússon sagði: „Ég tel dapurlegt ef það eiga að verða örlög okkar Íslendinga að afsala hluta af okkar fullveldi úr landi áður en lýðveldið fagnar hálfrar aldar afmæli.“

Stefán Vagn Stefánsson Framsóknarflokki slær nú sama takt og faðir hans heitinn, Stefán Guðmundsson, gerði. Hann sagði: „Við erum að opna landhelgi Íslands fyrir flota Evrópubandalagsins. Við greiðum leið erlendra þjóða til að komast yfir orkulindir landsins.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: