- Advertisement -

Þetta er ekki trúverðugt forsætisráðherra

Ríkisstjórnin hefur þvert á móti hoggið í atvinnugreinar hringinn í kringum landið, útflutningsgreinarnar, á þessum tíma þar sem við ættum að vera varfærin.

Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins.

Alþingi: „Ég þakka háttvirtum þingmanni Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir að hefja þessa umræðu og eins hæstvirtum forsætisráðherra fyrir að koma hingað og svara okkur. Ég verð að viðurkenna að fyrir þessa umræðu hef ég haft vaxandi áhyggjur af efnahagsmálum á Íslandi og eftir svör hæstvirts forsætisráðherra núna og hæstvirts utanríkisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum fyrr í dag hef ég mun meiri áhyggjur,“ sagði Sigurður Ingi formaður Framsóknarflokksins í umræðunni um efnhagsmál á Alþingi.

„Ríkisstjórnin virðist vera í fullkominni afneitun um það sem er að gerast í íslensku samfélagi og kemur hér upp enn og aftur og heldur því fram að óstjórn síðustu ára hafi verið svo gríðarleg og vandinn sé því svo mikill hjá núverandi ríkisstjórn. Eru kannski núverandi ríkisstjórn og hæstvirtur forsætisráðherra bara búin að gleyma því að tekjuaukinn á þessu ári var 80 milljarðar umfram það sem fjárlögin sögðu? Eru kannski hæstvirtur forsætisráðherra og ríkisstjórnin búin að gleyma því að í fjárlögunum sínum juku þau útgjöldin um yfir 120 milljarða? Þau hefðu kannski getað látið sér duga 110 og skilað hallalausum fjárlögum fyrir fram, í spá.

Síðan gerist ýmislegt í íslensku samfélagi. Það er óhjákvæmilegt og ég ætla ekki að kenna ríkisstjórninni um það allt, augljóslega ekki þegar eru vandræði í stórum iðnfyrirtækjum. Ríkisstjórnin hefur hins vegar ekki haft þá stefnu að auka hér verðmætasköpun, að horfa á atvinnulífið hringinn í kringum landið. Hún hefur þvert á móti hoggið í atvinnugreinar hringinn í kringum landið, útflutningsgreinarnar, á þessum tíma þar sem við ættum að vera varfærin. Síðan koma þau hér hvert á fætur öðru og segja: Nei, þetta er auðvitað alvarlegt en áhrifin verða engin. Þetta er ekki trúverðugt, hæstvirtur forsætisráðherra.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: