- Advertisement -

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru sem vélmenni

Nýjasta nýtt af klofningnum innan Sjálfstæðisflokksins:

„Þrátt fyrir þá breidd, sem komin er í andstöðuna halda einstakir þingmenn stjórnarflokkanna, og þá fyrst og fremst þingmenn Sjálfstæðisflokksins, áfram að tala eins og vélmenni, hafa uppi sömu setningarnar um að þeir einir séu handhafar staðreynda málsins en allir aðrir hafi uppi lygar, auk þess að uppnefna flokkssystkini sín,“ skrifar Styrmir Gunnarsson um stöðuna í deilunni um orkupakkann.

„Sá málflutningur bendir ekki til að þeir hinir sömu telji sig þurfa að hlusta á fólkið í landinu, að ekki sé talað um að þeir átti sig á að það kemur dagur eftir þennan dag,“ skrifar Styrmir einnig á vef sinn, styrmir.is.

Ætla má að Styrmir hafi ekki síst í huga málflutning Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur í Silfrinu á sunnudaginn.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: