Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra skrifaði:
„Ég ætla að segja já þann 29. ágúst við að íslenska þjóðin fái að fara í samningaviðræður og fái að sjá hvernig samningur myndi líta út og hvað hann myndi þýða.
Eftir það fær þjóðin svo aftur að kjósa um samninginn. Og getur þá kosið um hvað við viljum gera þegar við höfum fengið fram allar upplýsingar.
Tvær þjóðaratkvæðagreiðslur segja okkur fyrst og fremst að það er þjóðin sjálf sem tekur þessa ákvörðun.
Í Evrópusambandinu eru 27 fullvalda ríki. Þau taka þátt sem fullvalda ríki, voru fullvalda ríki þegar þau fóru inn í sambandið og eru fullvalda ríki eftir það.
Ég er sjálf sannfærð um að aðild skili okkur lægri vöxtum og heilbrigðari samkeppni. Ég vil líka sterkari samvinnu innan Evrópu í því ástandi sem nú ríkir í heimsmálunum.
Núna fer fram umræða um þetta mál hringinn kringum landið. Umræðan er mikil og sums staðar óvægin en umræðan hins vegar er besta verkfæri okkar til að draga fram staðreyndir og ólík sjónarmið. Það er síðan okkar hvernig við viljum að verja orkunni í umræðunni.
Mér finnst heilbrigt og skynsamlegt að við fáum tvær atkvæðagreiðslur þjóðarinnar:
- fyrst til að ákveða hvort við viljum fara í samningaviðræður
- og svo um hvort okkur líst á þann samning sem býðst.
Ég sé atkvæðagreiðsluna fyrst og fremst sem mikið tækifæri almennings.
Og segi stolt já.“