- Advertisement -

Þorgerður Katrín er stolt af Kristrúnu

„Við eigum að mæta framtíðinni af sjálfstrausti, verja hagsmuni landsins af festu og treysta þjóðinni.“

Þorgerður Katrín utanríkisráðherra skrifaði:

„Það fyllti mig stolti að hlusta á okkar framúrskarandi forsætisráðherra í einu áhrifamesta stjórnmálahlaðvarpi heims, The Rest Is Politics. Sem er líka eitt af mínum uppáhalds. Rödd Íslands skiptir máli á alþjóðavettvangi og við erum heppin að eiga jafnsterkan málsvara og Kristrúnu.

Kristrún var skýr, yfirveguð og sannfærandi þegar hún ræddi stöðu Íslands á tímum mikilla breytinga í heiminum. Mér fannst hún orða sérstaklega vel hvers vegna einmitt nú sé rétti tíminn fyrir Ísland að setjast aftur að samningaborðinu. Ég deili þeirri sýn. Aldrei áður höfum við verið í jafnsterkri stöðu til að gæta hagsmuna okkar í mögulegum aðildarviðræðum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þess vegna skiptir þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst svo miklu máli. Við erum ekki að kjósa um aðild heldur um að gefa Íslandi tækifæri til að semja af styrk, fá allar staðreyndir á borðið og leyfa þjóðinni síðan sjálfri að taka endanlega ákvörðun.

Ég er sannfærð um að Ísland á fullt erindi í þessum alþjóðlegu samtölum. Við eigum að mæta framtíðinni af sjálfstrausti, verja hagsmuni landsins af festu og treysta þjóðinni.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: