- Advertisement -

Þorsteinn hefur gaman af Brynjari

„Ef eitthvað er hafði ræða háttvirts þingmanns ákveðið skemmtanagildi. Ég hélt eitt andartak að ég væri staddur í málfundafélaginu í Versló fyrir 50 árum þar sem menn hentu fram rakalausum skoðunum án þess að þurfa nokkru sinni að standa við þær. Þetta kemur mér svolítið á óvart vegna þess að háttvirtur þingmaður hefur jú starfað við rök og rökfræði allt sitt líf,“ sagði Þorsteinn Sæmundsson Miðflokki.

Þarna fann Þorsteinn að ræðu Brynjars Níelssonar Sjálfstæðisflokki.

„Ég veit ekki hvort það er aldurinn eða eitthvað svoleiðis sem er að fara svona með hann en ræðan var í sjálfu sér alveg rakalaus. Hann talaði þvert á öll lýðheilsusjónarmið og gerði heldur lítið úr þeim. Nú eru lýðheilsusjónarmið ekki eitthvað sem menn grípa úr loftinu, þau eru byggð á rannsóknum, rökum o.s.frv.

Háttvirtur þingmaður sagði, og það var ein af rangfærslunum í ræðunni, að framboð á áfengi á Íslandi hefði aukist stórlega af því að ríkiseinkasalan hefði fært út kvíarnar. Þetta er alrangt. Ríkiseinkasalan hefur sett upp nokkur útibú á landsbyggðinni til að leysa af pósthús sem voru lögð niður. Áfengissöluaukning undanfarin 30 ár er á veitingastöðum og það ætti háttvirtur þingmaður að vita. Þeim hefur stórfjölgað. Það er því ekki ríkiseinkasala sem ber ábyrgð á þessari söluaukningu, það eru veitingastaðir o.s.frv. Viljum við fara aftur fyrir bjór? Nei. En hrein vínandaneysla á ári á mann á Íslandi hefur tvöfaldast frá 1989. Hvað gerir það? Talandi um lýðheilsu hefur það aukið krabbameinstilfelli mikið hér á Íslandi. Bólað hefur á skorpulifur,“ sagði Þorsteinn.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: