Stjórnmál: Ágúst Ólafur Ágústsson, aðstoðarmaður Guðmundar Inga Kristinssonar ráðherrra, skrifaði:
Hvað er búið að vera gerast í mennta- og barnamálaráðuneytinu undanfarnar vikur? Förum yfir 10 fljótlesin atriði:
1. Fyrsta aðgerðaráætlun Íslands gegn fátækt barna en ráðherra kynnti í síðustu viku sérstakan stýrihóp um þetta. Um 10% barna á Íslandi búa við fátækt.
2. Ráðherra veitti í síðustu viku um 500 milljónir kr. í aðgerðir gegn ofbeldi gegn börnum.
3. Ráðherra kynnti drög í vikunni að nýjum heildarlögum um barnavernd. Þetta eru umfangsmestu breytingar sem hafa verið gerðar á barnaverndarlögum í meira en 20 ár.
4. Símafrí í skólum en frumvarp um slíkar reglur var lagt fram á Alþingi í síðustu viku. Ráðherrann kallaði einnig á Alþingi í gær eftir hækkun aldurs barna að samfélagsmiðlum.
5. Fyrsta ungmennastefna Íslands sett á dagskrá en ráðherra kynnti sérstakan stýrihóp um slíka vinnu í síðustu viku.
6. Ráðherra kallaði í vikunni eftir aukinni íslenskukennslu fyrir börn með erlendan bakgrunn, í þeirra eigin grunnskólum, en ekki í sérstökum „móttökuskólum“.
7. Eitt umfangsmesta gervigreindarverkefni á heimsvísu fyrir íslenska kennara var nýverið kynnt. Um 600 íslenskir kennarar fá einstakan aðgang að nýjustu gervigreindartólum í heimi til að taka þátt í þróun þeirra þegar kemur að kennslu.
8. Sett voru ný gæðaviðmið fyrir innra og ytra mat í framhaldsskólum. Fyrsta ytra matið á framhaldsskóla í 2 ár hófst nýverið. Nýjar mælistikur á aðgerðum verða svo tilbúnar fyrir áramót.
9. Núna í mars hefjast síðan nýju „samræmdu“ prófin í grunnskólum.
10. Á morgun klárast síðan heimsóknir menntamálaráðherra til allra opinberu framhaldsskóla landsins. 27 heimsóknir á 7 vikum. Enginn menntamálaráðherra hefur gert slíkt í öllum skólum landsins á svo skömmum tíma.

Ps. Á myndinni má sjá ráðherrann þegar það var símafrí í öllum skólum landsins.