- Advertisement -

Vilhjálmur bæjarstjóri skákar bæði Kristrúnu og Hildi borgarstjóra í launum

„Við getum því ómögulega samþykkt ofurlaunasamning nýs bæjarstjóra.“

Guðný Birna Guðmundsdóttir Samfylkingu.
Guðný Birna Guðmundsdóttir Samfylkingu.

Sveitastjórnir Guðný Birna Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ, sagði á fyrsta bæjarstjórnarfundi, eftir myndun meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks:

„Það vekur furðu hversu hratt sjónarmið geta breyst við það eitt að færast úr minnihluta í meirihluta. Þeir flokkar og bæjarfulltrúar sem gagnrýndu áður há laun og sérkjör bæjarstjóra, og töldu þau úr takti við kjör almenns starfsfólks, leggja nú sjálfir fram ráðningarsamning sem felur í sér sambærileg eða jafnvel betri kjör.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Því má gera ráð fyrir að heildarlaun verði vel yfir þrjár milljónir króna á mánuði.

Aðeins ellefu mánuðum eftir að laun bæjarstjóra voru lækkuð um 10% með vísan til fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og samfélagslegrar ábyrgðar er nýr bæjarstjóri, án reynslu af sambærilegu starfi, ráðinn á sambærileg kjör og forveri hans auk greiðslna fyrir bæjarfulltrúastörf og setu í stjórnum sem hann er pólitískt skipaður í. Um er að ræða setu bæjarstjóra í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar, sem formanns í Almannavarnarnefnd Suðurnesja utan Grindavíkur og sem fulltrúi á landsfund Sambands íslenskra sveitarfélaga. Því má gera ráð fyrir að heildarlaun verði vel yfir þrjár milljónir króna á mánuði og þar með hærri en laun æðstu ráðherra, forsætisráðherra og borgarstjóra, fyrir nýjan bæjarstjóra án reynslu af sambærilegu starfi og án reynslu af rekstri á stórum 1.200 manna vinnustað.

Það er eðlilegt að bæjarfulltrúar endurmeti afstöðu sína eftir því hvar þeir lenda eftir kosningar, en slíkar stefnubreytingar verða að vera rökstuddar. Að gagnrýna harðlega launahækkanir og sérkjör í minnihluta en leggja þau sjálf fram í meirihluta innan nokkurra mánaða dregur úr trúverðugleika málflutningsins.

Við bæjarfulltrúar Samfylkingar og Framsóknar teljum ekki ábyrgt að samþykkja samninginn. Á tímum þar sem tekjustaða sveitarfélagsins hefur ekki breyst og áfram er þörf á aðhaldi í rekstri teljum við mikilvægt að sýna ráðdeild og hefðum viljað sjá nýjan meirihluta standa strax við kosningaloforð þeirra um að hagræða í rekstri og auka gagnsæi í stjórnsýslu. Hér er það ekki gert og nýr bæjarstjóri endar tekjuhærri en fyrri bæjarstjóri vegna launa hans í bæjarstjórn og í stjórnum. Það er ekki nóg að sinna þessu umfangsmikla starfi, heldur þarf nýr bæjarstjóri einnig að sinna stjórnum samhliða starfi sínu.

Við getum því ómögulega samþykkt ofurlaunasamning nýs bæjarstjóra.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: