- Advertisement -

Vilja ræktun kannabis til lækninga

Halldóra Mogensen, formaður velferðarnefndar er fyrsti flutningsmaður.

Þingflokkur Pírata hefur lagt fram tillögu til þingsæalyktunar um ræktun kannabis, eða lyfjahamps, til lækninga.

„Með þingsályktunartillögu þessari er lagt til að ráðherra verði falið að undirbúa og leggja fram frumvarp að lögum sem heimili notkun og ræktun lyfjahamps. Með því er fyrsta skrefið að setningu reglna um lyfjahamp stigið.“

Lyfjahampur er heiti yfir kannabis eða hampjurt sem notuð er í læknisfræðilegum tilgangi. Notkun hampjurtarinnar sem lyfs á sér langa sögu auk þess sem hampjurtin hefur margvíslegt annað notagildi. Á síðastliðnum árum og áratugum hafa verið gerðar fjölmargar rannsóknir á læknisfræðilegum áhrifum lyfjahamps og ábata fyrir sjúklinga af notkun hans. Rannsóknir þessar hafa sýnt fram á að lyfjahampur hefur raunverulegt notagildi, m.a. í meðferð gegn krabbameini, taugasjúkdómum og öðrum alvarlegum sjúkdómum.

„Vímuefnalöggjöf á Íslandi hefur að mestu leyti haldist óbreytt undanfarna áratugi, fyrir utan einstaka hækkanir á refsiramma. Þar sem ljóst er að löggjöf víðs vegar um heiminn færist nú í átt að afnámi á þeirri bannstefnu sem hefur verið meginreglan í vímuefnalöggjöf er vert að skoða hvaða skref væri rétt að stíga hér á landi og hvaða úrbóta er þörf,“ segir einnig í greinagerð tillögunnar.

Annars er tillagan þessi: „ Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að undirbúa og leggja fram frumvarp til laga sem heimili notkun og framleiðslu lyfjahamps.
Við undirbúning frumvarpsins verði byggt á reynslu þeirra landa sem heimilað hafa notkun lyfjahamps og litið til allra þeirra þátta sem nauðsynlegt er að huga að við setningu laga og reglna um notkun og ræktun lyfjahamps, þar á meðal innflutnings og sölu á fræjum, ræktun plantna, framleiðslu og vinnslu lyfja úr plöntunum, ávísunar og dreifingar á tilbúnum lyfjahampi og hvernig best megi tryggja einfalt, öruggt og fyrirsjáanlegt regluverk sem verði notendum lyfjahamps til góðs.“

Og flutningsmenn eru: Halldóra Mogensen, Björn Leví Gunnarsson, Jón Þór Ólafsson, Sara Elísa Þórðardóttir, Smári McCarthy og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: