Virðast vera dauðhrædd við þjóðina
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar um Sjálfstæðisflokkinn og Evrópusambandið í nýrri grein sinni á dv.is. Hér á eftir eru sýnishorn af grein Kolbrúnar.
„Nú er það orðið svo að manni dauðbregður og maður signir sig í hvert sinn sem Sjálfstæðismenn úr harðlínudeildinni tjá sig um Evrópusambandið. Þeir eru orðnir svo viðskotaillir að þeim stendur hjartanlega á sama um sannleikann, vilja bara hræða mann með alls kyns innistæðulausum fullyrðingum.“
Og síðar í greininni stendur:
„Sjálfstæðisflokkurinn vill ekki vera valkostur fyrir frjálslynt fólk sem er fylgjandi Evrópusamvinnu. Hann hefur gert sig að samastað einangrunarsinna. Helsta von Sjálfstæðisflokksins felst í að komast í ríkisstjórn með Miðflokki og Framsóknarflokki, lifi sá síðastnefndi eftir kosningar. Þjóðarinnar vegna skulum við vona að af því samkrulli verði ekki. Það er ávísun á einangrunarhyggju og afturhaldsstefnu.
Það er óendanlega furðulegt að hlusta á málflutning þeirra manna sem vilja ekki undir neinum kringumstæðum að þjóðin segi já 29. ágúst. Þeir virðast vera dauðhræddir við þjóðina, allavega vilja þeir ekki gefa henni næði til að meta málið heldur messa yfir henni eins og strangur skólastjóri sem veit allt best. Það lýsir ekki mikilli virðingu fyrir þjóðinni og lýðræðinu.“