- Advertisement -

Vogunarsjóðir bæði buðu Sigmundi Davíð mútur og hótuðu honum

„Því var hótað að við fengjum aldrei réttar tölur um hlustun frá Gallup og við fengjum kærur á okkur, þannig eitthvað varstu að gera sem ógnaði mannskapnum,“ sagði Arnþrúður útvarpsstjóri.

„Fulltrúar erlendra vogunarsjóða reyndu að bjóða Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni þáverandi forsætisráðherra mútugreiðslur í skiptum fyrir að haga málum sem þá snerti hérlendis þeim í hag,“ segir á heimasíðu Útvarps Sögu.

Sigmundar var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur útvarpsstjóra.

Sigmundur sagði hlutina hafa þróast hratt í þá átt að bæði hafi verið gerðar tilraunir til þess að beita þrýstingi og bjóða mútur þegar hann tók varð forsætisráðherra. Það var þegar fulltrúum vogunarsjóðanna varð ljóst að Sigmundur myndi ekki beygja sig undir þá við uppgjör á slitabúum bankanna.

…sem bæði buðu greiðslur fyrir það að leysa málin á þann hátt sem þeir teldu farsælt og beittu hótunum,..

Á síðu Útvarps Sögu segir: „Í þættinum lýsti hann því hvernig óbeinn þrýstingur var aukinn stig af stigi, fyrst hafi verið reynt að hafa áhrif á embættismenn í hinum ýmsu ráðuneytum og reynt að telja þeim trú um að þessar áætlanir gengju ekki upp og væru gegn reglum alþjóðakerfisins og gætu haft gríðarlega alvarlegar afleiðingar fyrir Ísland.“

„Svona var þetta útskýrt fyrir embættismönnunum og þeir svo bera þetta áfram og verða auðvitað smeykir hafandi borið mikla virðingu fyrir þessu alþjóðakerfi, verða smeykir við svona ábendingar og vilja ekki bera ábyrgð á mögulegu klúðri og skrifa greinargerðir um hvað sé hættulegt að gera í stað þess að skrifa frekar um hvað hægt sé að gera,“ sagði Sigmundur Davíð.

Hann sagði að beinum þrýstingi hafa verið beitt, meðal annars hafi komið að máli við hann sendiherrar vissra ríkja sem töluðu máli erlendra vogunarsjóða og fjármálafyrirtækja og komu með viðvaranir sem settar voru kurteisisbúning að hætti diplómata.

Aðspurður um hvort sendiherrarnir hafi boðið eitthvað í staðinn fyrir að greiða götu þessara erlendu aðila segir Sigmundur Davíð ekki svo vera en vissir aðilar hafi boðið mútur.

„Það voru hins vegar aðrir, fulltrúar þessara vogunarsjóða, sem bæði buðu greiðslur fyrir það að leysa málin á þann hátt sem þeir teldu farsælt og beittu hótunum, en þær komu ekki beint til mín heldur í gegnum milliliði, að það sem ég væri að tala fyrir þarna væri slík ósvinna að ég myndi fá að finna fyrir því,“ sagði Sigmundur.

…yrði stöðinni rústað.

Hann sagði að bæði hafi þessir aðilar haft mjög mikilla fjárhagslegra hagsmuna að gæta og þá hafi þeir verið hræddir við það fordæmi sem verið væri að setja með útspili sínu.

Arnþrúður greindi frá því í þættinum að henni hefði borist hótun á nýársdag 2016 þess efnis að ef talað væri við Sigmund á þeim tíma sem hann væri forsætisráðherra eða talað hans máli á stöðinni yrði stöðinni rústað.

„Því var hótað að við fengjum aldrei réttar tölur um hlustun frá Gallup og við fengjum kærur á okkur, þannig eitthvað varstu að gera sem ógnaði mannskapnum,“ sagði Arnþrúður.

Miðjan mun senda Sigmundi Davíð spurningar um hvort hann hafi ekki gert lögreglu viðvart og hverjir erftirmálar þessa voru.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: