Dagur B. Eggertsson skrifar.

„Ég hef fagnað því að allir taki þátt í Evrópuumræðunni – en þetta innlegg Ólafs Ragnars gengur ekki, því miður. Ég vona að þetta sé ekki rétt eftir Ólafi Ragnari haft – því ef svo er þá er þetta gróflega villandi og auðvitað beinlínis rangt (svo ekki séu notuð stærri orð) og tilraun til að grafa undan því sem Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa sagt skýrt frá upphafi. Að samningur verði borinn undir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu. Reyndar þarf ekki að vitna til ráðherra í því. Í þingsályktunartillögunni frá því í vor, um þjóðaratkvæðagreiðsluna sem fram fer síðar í þessum mánuði kemur hið sama skýrt fram í upphafi greinargerðar:
„Það er mat ríkisstjórnarinnar að áframhald aðildarviðræðna við ESB sé svo viðamikið hagsmunamál að ekki komi annað til greina en að leita leiðsagnar þjóðarinnar í þeim efnum. Þjóðin hafði ekki beina aðkomu að því að hefja ferlið árið 2009 og nú er tækifæri til að leiðrétta það. Þá liggur fyrir að þjóðin getur ekki tekið afstöðu til aðildar nema að aðildarviðræðum verði haldið áfram og þeim lokið með samningi um aðild Íslands að ESB sem síðan yrði lagður fyrir þjóðina í annarri atkvæðagreiðslu til samþykktar eða synjunar.“