- Advertisement -

Trump er eins og drukkin górilla í postulínsbúð

„Nú þurfa Evrópubúar að snúa bökum saman sem aldrei fyrr. Íslendingar verða að styrkja sína stöðu með því að ganga í ESB. Þar eru okkar raunverulegu bandamenn.“

Oddný Harðardóttir.

Facebook:

Oddný Harðardóttir skrifaði:

„Mikið er rætt um nýja þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjana í erlendum miðlum. Öllum ber saman um að hún veiki Evrópu. Hún sé samt í samræmi við það sem Trump hefur sagt en fáir tekið beint mark á hingað til. Nú er búið að skrifa stefnuna niður á blað og þá tekur fólk hana alvarlega.

Trumpstjórnin hefur gefið út 350 bannorð…

Bandaríki Trumps spyrja ekki hvort viðbrögð við áskorunum séu góð fyrir heiminn eða alþjóðasamfélagið heldur aðeins hvort þau séu góð fyrir Ameríku. Bandaríkin eru mest og best og þurfa ekki á bandamönnum að halda eða alþjóðastofnunum.

Trump vill einbeita sér að Ameríku, bæði norður og suður. Í áratugi hafa Bandaríkjamenn ræktað samband sitt við Evrópu. Nú er Evrópa hins vegar skilgreindur höfuðóvinur USA en hvorki Rússar né Kínverjar skilgreindir á sama hátt.

Trump grefur skurði á milli landa í stað þess að byggja brýr. Um hann hefur verið sagt að hann sem forseti sé eins og drukkin górilla í postulínsbúð. Spilltur svikari sem er tilbúinn til að hafna lýðræðinu og notar sömu talpunkta og Pútín.

Trumpstjórnin hefur gefið út 350 bannorð í opinberu samtali í Bandaríkjunum. Orð sem ekki má nota á heimasíðum, í skýrslum, tölvupóstum, skjölum og yfirlýsingum. Hér eru nokkur dæmi: Andóf gegn kynþáttahatri, fjölbreytileiki, loftlagsvá, jafnrétti, mismunun, feminismi, LGBTQI, fjölmenning, óréttlæti.

ESB vill standa vörð um lýðræðið, réttarríkið og alþjóðastofnanir. Nú þurfa Evrópubúar að snúa bökum saman sem aldrei fyrr. Íslendingar verða að styrkja sína stöðu með því að ganga í ESB. Þar eru okkar raunverulegu bandamenn.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: