- Advertisement -

Níu ár til spillis, er það réttlætanleg fórn?

Þrátt fyrir þessar tölur börðust Sólveig Anna Jónsdóttir og Vilhjálmur Birgisson gegn evrunni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

Jóhann Þorvarðarson skrifar:

Þegar Seðlabanki Íslands hækkaði stýrivexti á dögunum um 0,25 prósentustig hækkaði Arion banki vexti óverðtryggðra íbúðalána um sama hlutfall. Fyrir verkakonu með 50 milljóna króna óverðtryggt íbúðalán til 25 ára hækka vaxtagreiðslur á líftíma lánsins um fjárhæð sem samsvarar fimm mánaða launum.

Seðlabankinn hefur hækkað stýrivexti þrisvar sinnum á árinu, alls um 0,75 prósentustig. Fyrir sama lántaka jafngildir sá kostnaðarauki um fimmtán mánaðarlaunum verkakonunnar að öðru óbreyttu.

…spyrja sig eflaust
hvort afsögn Sólveigar
og Vilhjálms sé yfirvofandi.

Á evrusvæðinu eru íbúðalánavextir hæstir í Lettlandi, eða 4,3%. Bæri sambærilegt lán slíka vexti myndi heildarvaxtakostnaður þess lækka um 51 milljón króna. Sú fjárhæð jafngildir samanlögðum lágmarkslaunum í níu ár samkvæmt kjarasamningi Eflingar.

Þrátt fyrir þessar tölur börðust Sólveig Anna Jónsdóttir og Vilhjálmur Birgisson gegn evrunni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Ég óttast að margar vinnuslitnar konur líti þá afstöðu öðrum augum, enda leggjast háir vextir á Íslandi hvað þyngst á láglaunafólk. Fyrir fólk í þeirri stöðu getur skipt sköpum að spara fjárhæð sem nemur níu ára lágmarkslaunum. Sólveig Anna og Vilhjálmur virðast hins vegar telja 51 milljón króna ásættanlega fórn fyrir áframhaldandi notkun íslensku krónunnar.

Konurnar kunna að velta fyrir sér hvort framgangan samrýmist hlutverki þeirra sem málsvara láglaunafólks og spyrja sig eflaust hvort afsögn Sólveigar og Vilhjálms sé yfirvofandi.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: