Halla Gunnarsdóttir skrifaði:
„Við í VR, LÍV og Fagfélögunum höfum sent bréf á helstu fyrirtæki sem hafa verðmótandi áhrif og óskað svara um hvað þau ætli sér að gera til að halda aftur af verðhækkunum og draga þannig úr verðbólgu. Fyrsta svarið hefur þegar borist, frá SS sem ætla að fresta verðhækkunum. Fleiri svör eru væntanleg, fylgist með á slóð í athugasemdum!
Sambærileg bréf eru á leið á sveitarfélögin. Það er nefnilega þannig að ef allir eiga að leggjast á árarnar, þá þurfa allir að leggjast á árarnar! Það hefur því miður ekki verið raunin.“