Jóhann Þorvarðarson skrifar:
Frá því Inga Sæland stofnaði Flokk fólksins hefur hún ítrekað orðið skotspónn harðra persónuárása. Sumar þeirra hafa gengið svo langt að þær hafa vakið almenna hneykslun. Klausturmálið er eitt skýrasta dæmið um slíkt. Þar lét Bergþór Ólason þingmaður afar niðrandi ummæli falla um Ingu og kallaði hana meðal annars „húrrandi klikkaða kuntu“ og „fokking tryllta“.
Við sama tækifæri sagði Karl Gauti Hjaltason þingmaður um Ingu: „Hún getur þetta ekki. Hún getur talað um þetta, hún getur grenjað um þetta, en hún getur ekki stjórnað.“ Þá sagði Egill Helgason að hún væri „laus við mannúð“.
Inga hefur einnig verið kölluð svikari og lygari og sökuð um valdníðslu. Árásirnar hafa fylgt henni nær allan stjórnmálaferil hennar, allt frá því að hún stofnaði Flokk fólksins við eldhúsborðið heima hjá sér.
Vissulega er Inga
Sæland frábrugðin
mörgum hefðbundnum
stjórnmálamönnum.
Nær okkur í tíma kemur hið sérkennilega Ársælsmál í Borgarholtsskóla upp í hugann. Þar var Ingu, að mati margra, ekki leyft að vera einfaldlega amma sem hafði áhyggjur af barnabarni sínu. Þess í stað fór skólameistarinn, sem vissi að endurráðning hans yrði ekki sjálfgefin, með ásakanir í fjölmiðla um að Inga hefði í krafti ráðherraembættis síns haft í hótunum við hann, án þess að fyrir því lægju sannanir.
Skólameistaranum þótti jafnframt ekkert athugavert við að gera einkasamtal sitt við ömmu að opinberu umtalsefni. Tilefnið virtist fyrst og fremst vera að grafa undan trúverðugleika Ingu.
Samkvæmt fjölmiðlaumfjöllun gekk málið enn lengra. Prentað var út púsluspil með skopmynd af Ingu sem lá frammi í sameiginlegu rými starfsmanna skólans. Hvort skólameistarinn stóð sjálfur að þeirri ákvörðun eða ekki liggur ekki fyrir, en hann gerði að minnsta kosti ekkert til að stöðva gjörninginn. Erfitt er að sjá annan tilgang með slíkri framsetningu en að gera Ingu að athlægi innan veggja opinberrar menntastofnunar.
Framganga skólameistarans kom mér þó ekki sérstaklega á óvart. Við gengum í sama skóla og æfðum með sama íþróttafélagi. Eins og máltækið segir: Snemma beygist krókurinn. Að mínu mati á það vel við um Ársæl.
Yfir- og fyrirgangur kennaraforustunnar gagnvart Ingu verðskuldar umfjöllun þó ekki væri nema vegna dónaskapar og ályga.
Vissulega er Inga Sæland frábrugðin mörgum hefðbundnum stjórnmálamönnum. Hún er hvorki slípuð af spunasérfræðingum né þekkt fyrir litlaus og varfærin svör. Hún talar af ástríðu og lætur ekki auðveldlega beygja sig. Af viðtölum og umfjöllun um líf hennar má ráða að leiðin hafi oft verið brött og mótlætið mikið. Vegna þess þá er hún harðfylgi af ást eða eins og segir í lagi eftir Nick Lowe ‘gotta be cruel to be kind’.
Þrátt fyrir það hefur hún náð þeim árangri að verða einn áhrifamesti stjórnmálamaður landsins. Geri aðrir betur.
…mun sagan hampa
Ingu Sæland…
Inga hefur svo sannarlega haft áhrif á íslensk stjórnmál. Hún hefur beint kastljósinu að málefnum þeirra sem standa höllum fæti og gert þau að forgangsmáli í opinberri umræðu og í ríkisstjórn. Þar á meðal eru málefni barna. Hún hefur náð eftirtektarverðum árangri í baráttu fyrir bættum kjörum þeirra sem minnst mega sín. Að mati margra hefur hún náð meiri árangri á því sviði en ýmsir eldri og rótgrónari flokkar. Hún hefur jafnframt aukið virðingu og sýnileika þeirra þjóðfélagshópa sem lengi höfðu lítið vægi í stjórnmálaumræðunni.
Gamlir valdaflokkar og Klausturflokkurinn virðast eiga erfitt með að sætta sig við velgengni Ingu og Flokks fólksins. Sumir virðast telja sig eiga það fylgi sem flokkur hennar hefur aflað sér. En staðreyndin er sú að kjósendur velja sjálfir. Í stað þess að ráðast stöðugt að Ingu Sæland ættu þessir aðilar ef til vill að líta í eigin barm, spyrja sig hvort þeir séu í réttu starfi og jafnvel íhuga hvort námskeið í háttvísi kæmi sér ekki vel. Það er auðvelt að tala illa um aðra, en mun erfiðara að vinna sér virðingu með verkum sínum.
Þegar fram líða stundir mun sagan hampa Ingu Sæland fyrir það sem hún áorkaði, en menn á borð við Bergþór Ólason verða ávallt kenndir við Klausturmálið og framgöngu sína þar. Hvað Ársæl varðar þá verður hans minnst fyrir trúnaðarbrest og æruveiðar gagnvart Ingu Sæland.