- Advertisement -

Verða veggjöld á höfðuborgarsvæðinu?

Alþingi:

Guðlaugur Þór Þórðarson hefur sent fyrirspurn til fjármála- og efnahagsráðherra um veggjöld innan samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.

Spurningarnar eru þessar:

  • Af hvaða framkvæmdum innan samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins verða innheimt veggjöld af almenningi og hverjum ekki, ef einhverjum, miðað við áætlanir Betri samgangna um 143 milljarða kr. tekjur af veggjöldum, flýti- og umferðargjöldum?
  • Hvað er gert ráð fyrir að innheimta í gjöld fyrir hverja ekna ferð?
  • Er mismunandi gjald eftir mismunandi verkefnum í sáttmálanum? Mun þannig ferð í gegnum Miklubrautargöng kosta meira eða minna en t.d. ferð um Sæbrautarstokk?
  • Er í forsendum sáttmálans gert ráð fyrir að veggjöld innan höfuðborgarsvæðisins verði alls staðar þau sömu eða er gert ráð fyrir mismunandi gjaldtöku eftir hverfum eða bæjarhlutum?
  • Hvenær hyggst ráðherra leggja til að gjaldtakan verði rædd á Alþingi?
  • Hyggst ráðherra leggja til að Alþingi samþykki gjaldtökuna? Ef svo er ekki, hverjir eiga að taka ákvörðun um hana?

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: