- Advertisement -

Samfylkingin sækir á þrátt fyrir harða gagnrýni

Kristnn Hrafnsson:

„Það örlar á því að menn telju helstu tíðindin í þessari könnun að Samfylkingin bæti við sig á sama tíma og ríkisstjórnin er að fá á sig harða gagnrýni fyrir stöðuna í efnahagsmálum. Það er nokkuð til í því. Það ætti samt að vera áhyggjuefni að líta á svarta kassann og sjá 40% fylgi við tvo flokka sem keppast í hraðferð að öfga hægrinu. Þarna finnur þú Ísraelista, aðdáendur AfD, hatusmenn múslima og ESB, andstæðinga LGBTQ+, Trumpista og MAGA-liðsmenn. Þetta eru þeir sem vilja bara skattleggja almúgann – ekki auðmenn, finnst fínt að búa við okurvexti örmyntar í ólígarkaríki og vilja fyrir alla muni slátra RÚV.
Þetta er í raun einn flokkur, Sjálf-mið-flokkurinn, sem er að bítast um sama fylgið.
Raunar er ég ekki viss um að allir kjósendur þessara tveggja flokka felli sig sanntrúaðir undir flörtið við fasismann sem forysta flokkanna er að bjóða upp á.
Hitt er lika áhugavert að við höfum samtals 12,4% prósentustiga fylgi við flokka sem ná ekki 5% þröskuldinum.“ 

Þú gætir haft áhuga á þessum

Gauti B. Eggertsson:

„Ég skil ekki hvernig þessir þursar og popúlistar í Miðflokknum eru að fá þetta fylgi. Um langa hríð leit út fyrir að við Íslendingar værum lausir við þá óværu sem flokkar af þessu tagi eru. Svo er að sjá að þeim dögum sé lokið.

Hér er verið að róa á gruggugum miðum af hræsni og litlum heiðarleika, að því er mér best sýnist. Endalausar hundablístrur eða bara hreinir fordómar gagnvart fólki af erlendu bergi brotnu. Ömurlegt fyrirbæri.

Maður þekkir marga sem í þessu standa og veit vel að þetta eru bara ömurlegar atkvæðaveiðar. Eða kannski getur svo farið fyrir hvaða fólk sem er að þegar það bullar nægilega lengi fer það að trúa bullinu sjálft. Annars grunar mig að þegar leysist úr forystukrísu Sjálfstæðisflokksins leiti mikið af fylgi Miðflokksins þangað.“

Guðmundur Andri Thorsson:

 „Fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu var Vg komið með kjörfylgi sem dygði til að ná manni á þing. Skoðanakannanir sýndu líka að meirihluti hugsanlegra kjósenda flokksins vildu taka upp viðræður við ESB, eins og Rósa formaður. Með sameiginlegu átaki tókst hins vegar fyrri valdamönnum flokksins að keyra þetta fylgi niður á ný.2


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: