- Advertisement -

Útgangsskiltið blikkar til vinnusvikara

Samfélagið:

Jóhann Þorvarðarson skrifar:

Vilhjálmur Birgisson og Sólveig Jónsdóttir nálgast útganginn með sívaxandi hraða. Yfir höfðum þeirra blikkar útgangsskiltið æ ákafar, en hvorugt virðist tilbúið að horfast í augu við það sem flestum áhorfendum er löngu orðið augljóst. Og ekki bætti vinnuleti vikunnar stöðu þeirra.

Bæði tóku skýra afstöðu gegn aðildarviðræðum að Evrópusambandinu þrátt fyrir að slíkar viðræður hefðu lækkað verðbólguvæntingar og þar með þrýst vöxtum hraðar niður en heimskan í Seðlabankanum treystir sér til að gera. Fyrir skuldugt láglaunafólk hefðu kjarabæturnar nú þegar verið farnar að skila sér í lægri vaxtakostnaði, án þess að semja þyrfti við gróðasvelginn í Borgartúni 35 um það.

Tvíeykið gerðist
einnig sekt
um vinnusvik…

Á sama tíma væru íslensk fákeppnisfyrirtæki farin að bregðast við mögulegri aðild með forvirkum aðgerðum sem leiða til lægri álagningar. Þannig virkar svipa samkeppninnar.

Þar má til dæmis nefna tryggingafélögin. Á meðan ég skrifa þessi orð er ég að endurskoða tryggingar heimilisins og bjóða þau öll sama verð fyrir nákvæmlega sömu vöru. Það er ekki einu sinni blæbrigðamunur á tilboðunum.

En það er ekki allt.

Tvíeykið gerðist einnig sekt um vinnusvik gagnvart eigin félagsmönnum þegar það samþykkti í vikunni að halda gildandi kjarasamningi óbreyttum án þess að fyrir lægi nákvæm útfærsla á vaxtabótaauka ríkisstjórnarinnar né að hann væri fullfjármagnaður til að skila tilætluðum árangri.

Með öðrum orðum ákváðu þau að treysta á lausn sem var ekki tilbúin. Fugl í skógi var metinn meira en fugl í hendi. Þau höfðu engar tryggingar fyrir því að nægt fjármagn væri til staðar og engar skýrar upplýsingar um hvernig útfærslan myndi líta út.

Kjarabaráttan er ekki beinlínis fátæk af brostnum loforðum yfirvalda. Ekki þarf að líta lengra aftur en til þess þegar viðsemjandinn Bjarni Benediktsson gegndi embætti fjármálaráðherra og núgildandi kjarasamningar voru undirritaðir. Þá var því heitið að breytingar á tekjuskattskerfinu myndu gagnast þeim lægst launuðu mest. Niðurstaðan varð hins vegar önnur, eins og ég benti á á sínum tíma.

…trúverðugleikinn
er týndur og
tröllum gefinn.

Halla Gunnarsdóttir og hennar fólk stóð vaktina til enda og sinnti því vandasama verkefni að sigla málinu í höfn í stað þess að fljóta fyrir utan hafnargarðinn í óvissu .Þegar skip Höllu loksins lagðist að bryggju var eina athugasemd tvíeykisins sú að ferðin hefði verið leikrit. Árásin kom frá fólki sem hafði sjálft ekki haft fyrir því að hnýta þá lausu enda sem Halla og hennar fólk gengu frá.

Ég á erfitt með að trúa því að félagsmenn Eflingar og Starfsgreinasambands Íslands séu sérlega ánægðir með slík vinnubrögð. Mig grunar að bæði muni mæta mótframboði þegar þar að kemur. Baráttuandinn virðist vera á undanhaldi og trúverðugleikinn er týndur og tröllum gefinn.

Nú blikkar útgangsskiltið sífellt hraðar og spurningin er ekki hvort þau sjái það. Spurningin er hvort þau búi yfir nægri sómatilfinningu til að ganga sjálf út áður en félagsmenn vísa þeim á dyr.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: