
Stjórnmál:
Úlfar Hauksson skrifaði:
Mogginn í smásmygli. Nú vita allir sem ferðast hafa utan Hádegismóa að hótel leigja út herbergi. Gildir einu hvort einn einstaklingur eða tveir gisti í herberginu kostnaðurinn er sá sami. Einstaklingsherbergi er afar sjaldgæfur kostur og varla til umræðu í þessu samhengi. Nú veit ég ekki hvort Moggaliðið fari framá að hún María Rut greiði niður gistnáttakostnað ríkisins úr því hún nýtti tækifærið og slóst í för með eiginkonu sinni… en hitt veit ég að ríkið… almenningur… greiðir niður kostnað við útgáfu Moggans og rær undir með moldríkum eigendum blaðsins. Eigum við kannski að ræða það frekar?
Þú gætir haft áhuga á þessum