- Advertisement -

Lilja sjálf eða Framsókn borgi

Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur: „Hér má sjá hvernig Framsóknarmennirnir fara með ráðningarvaldið – þeir fara enn eftir spilltum hefðum „gamla Íslands“. Ég hef áður talað um ráðningar Ásmundar Einars, en ekki um ráðningar Sigurðar Inga. Lilja, sem hefur sýnt femíníska hlið á sér, t.d. í Klaustursmálinu – og þekkir vel til undirskipunar kvenna í opinberu lífi og varðandi leiðandi stöður í þjóðfélaginu – lætur flokksskírteini ráða við ráðninguna.

Ég þekki lauslega til starfa Hafdísar og get ekki hugsað mér hæfari ráðuneytisstjóra. Í meðfylgjandi frétt segir: „Hafdís Helga er skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu en hafði áður meðal annars verið forstöðumaður nefndarsviðs Alþingis og fulltrúi forsætisráðuneytisins í sendiráði Íslands í Brussel.“ Um Pál ætla ég ekkert að segja.“

Gunnar Smári skrifar:

„Það ætti að draga allar þessa skaðabætur vegna pólitískra ráðninga af framlögum ríkisins til stjórnmálaflokkanna, samkvæmt þessum úrskurði ætti Hafdís Helga að geta sótt í það minnsta 20 m.kr. í ríkissjóð. Annað hvort á Lilja að borga það sjálf eða Framsókn. Svo á náttúrlega að reka Pál og ráða Hafdísi Helgu. Meðan að stjórnmálafólk og stjórnmálaflokka bera engan skaða af þessum ráðningum þá halda þær áfram.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: