- Advertisement -

Aðgerðarpakkinn dugar hvergi

Rósa Björk Brynjólfsdóttir formaður Vinstri grænna:

Mótvægisaðgerðirnar skortir þannig alla félagslega heildarsýn og taka til að mynda ekki á húsnæðiskostnaði sem er einn stærsti drifkraftur verðbólgu.

Stjórnmál: „Tímabundnar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar til 31. ágúst eru því miður of rýrar, of almennar og skortir heildarsýn fyrir fleiri en bílaeigendur.

Það sem er átakanlegast er að það vantar allar sértækar aðgerðir sem miða að því að stuðla að félagslegu réttlæti og halda vörð um viðkvæmustu samfélagshópana.

Það vantar alvöru markvissar mótvægisaðgerðir sem gagnast samfélagshópum eins og barnafjölskyldum eða tekjulágum. Hvað þá alvöru aðgerðir til að mæta fjölda atvinnulausra sem mælist í mars 7,1% hjá Hagstofunni og 4,8 % hjá Vinnumálastofnun. Atvinnuleysi sem er sama sem ekkert að minnka !

Þú gætir haft áhuga á þessum

Mótvægisaðgerðirnar skortir þannig alla félagslega heildarsýn og taka til að mynda ekki á húsnæðiskostnaði sem er einn stærsti drifkraftur verðbólgu.

  • – Því hefði verið hægt að kynna til leiks tímabundnar aðgerðir til að stemma stigu við háu leiguverði eins og leiguþak eða leigubremsa.
  • – Til að mæta barnafjölskyldum og tekjulágu fólki ( báðir hópar eru afar viðkvæmir fyrir verðbólguhækkunum og atvinnuleysi) hefði verið hægt að kynna barnabótaauka til tekjulægri og hækkun húsaleigubóta. Það var gert td 2020 í Covid.

Fyrst hægt er að sjá af 3,5-4 milljörðum tekna Ríkissjóðs, af hverju ekki að nota upphæðina í mun markvissari aðgerðir?

Aðgerð til að lækka bensínverð er skiljanleg en er almenn aðgerð sem gagnast ekki sérstaklega viðkvæmustu hópunum sem við hljótum að vilja verja sérstaklega. Það er bara ekki boðlegt eða nóg að segja “plís ekki vera að hækka vöruna núna” eins og Inga Sæland sagði í gær á blaðamannafundi formanna ríkisstjórnarinnar…

500 milljónir í orkuskipti sem mótvægi við bensínlækkun er góðra gjalda verð og við í Vinstri grænum fögnum auknum fjármunum í það, en veitt hefur verið fjármagni í orkuskipti í samgöngum í fjölda ára og er langtímaverkefni sem dregur lítið eða bara alls ekki úr verðbólgu til skemmri tíma.

Þess vegna er ég hrædd um að aðgerðapakki ríkisstjórnarinnar hafi ekki næg, raunveruleg áhrif. Nema sem almenn aðgerð sem gagnast helst öllum bifreiðaeigendum.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: