Sjávarútvegur Sigurjón Þórðarson alþingismaður skrifar:
Ég sem stend á því fastar en fótunum að óhætt sé að bæta verulega í veiðar því er mér mjög til efs að vigtarsvindl Ísfélagsins hafi haft nokkrar neikvæðar afleiðingar fyrir fiskistofnana. Það liggur hins vegar fyrir að sjómennirnir sem lönduðu á vigtinni góðu hafa ekki fengið greitt að fullu fyrir sína vinnu og því vonast ég til þess að sjómannafélögin sjái til þess að gert verði upp við þá í samræmi við rétta vigt.
Það sem er verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins er að á sama tíma og átt var við vigtina þá gengu þeir afar hart fram gegn því að opnað væri á eitthvert svigrúm gagnvart standveiðisjómönnum. Ísfélagið kærði nefnilega til umboðsmanns Alþingis úthlutanir til strandveiða á fiskveiðiárinu 2023/2024. Þessi kærumál urðu til þess að farið var að varfærni í að veita skynsamlegt svigrúm til strandveiða þar til málin væru til lykta leidd.
Skýringar Ísfélagsins á sínum málatilbúnað voru með ýmsu móti m.a. vildu heiðursmennirnir í Ísfélaginu koma í veg fyrir óábyrgar veiðar. Þeir orðuðu það svo skemmtilega eitthvað á þá leið; að með óábyrgum strandveiðum væri verið að vega að samfélaginu öllu með því að fara á svig við ábyrg nýtingarsjónarmið og þar með ábyrgum fiskveiðum.
Vonandi er að stórútgerðin læri af þessu máli en þegar öllu er á botninn hvolft þá tel ég að hagsmunum stórútgerðarinnar sé betur borgið með því að efla nýliðun og smábátaúgerð í stað þess að nota hvert tækifæri til þess að stíga á þá minni í greininni.