- Advertisement -

Bjarni með Covid

Bjarni skrifaði á Facebook:

„Kæru vinir, í morgun tók ég þátt í ráðherranefnd (fjarfundur)þar sem við ræddum stöðuna í faraldrinum. Eftir hádegið fór ég svo í PCR próf í varúðarskyni vegna ríkisstjórnarfundar í fyrramálið.

Ég fékk jákvæða niðurstöðu og fer því í 10 daga einangrun. Það er ekki gott að segja hvar eða hvenær ég hef fengið smitið, en það hafa verið smit nálægt mér bæði í vinnunni og í nærfjölskyldunni, eins og hjá svo mörgum þessa dagana.

Ég er með öllu einkennalaus á þessum tímapunkti. Vona að það verði þannig áfram svo ég geti sinnt margs konar verkefnum heima hjá mér sem setið hafa á hakanum. Það eru líka bækur á náttborðinu sem ég þarf að klára að lesa. Og svo tek ég því mögulega bara rólega líka. Það er víst mælt með því svona af og til.

Ég hvet alla til að sýna varkárni vegna víðtækra smita í samfélaginu. Samstaðan hefur skilað mögnuðum árangri til þessa og er lykilatriði fyrir frekari árangur. Lifið heil!“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: