„Þrjú ár eru síðan innleiðing hófst. Eru börn í betri stöðu nú en þá? Tölfræðin lýgur ekki. Þau eru í mun verri stöðu.“
Jón Pétur Zimsen.
Alþingi: Jón Pétur Zimsen Sjálfstæðisflokki á Alþingi í morgun:

Mynd: Jemetlane Rskp / Unsplash.
„Svört jól. Fréttir berast úr grunnskólum að börn og starfsmenn verði fyrir ofbeldi. Vanlíðan birtist því miður oft í ofbeldishegðun og neyslu fíkniefna. Úr ráðuneyti hæstv. mennta- og barnamálaráðherra berast upplýsingar og í nýrri skýrslu þaðan segir, með leyfi forseta: „Mikil aukning er í tilkynningum vegna vímuefnaneyslu barna og vegna ofbeldis sem börn beita sjálf.“ Reyndar neitar hæstv. ráðherra að horfast í augu við þetta. Ég minni á alvarleika málsins. Börn og ungmenni eru að deyja. Sumar fjölskyldur munu lifa svört jól í ár. Svört jól. Drengir hafa langoftast verið gerendur í ofbeldismálum en núna er mesta aukningin annars staðar, og segir í sömu skýrslu að hlutfall stúlkna í ofbeldisbrotum hafi hækkað og aldrei verið hærra og börn með erlendan bakgrunn eru einnig oftar en áður skráð sem grunuð í brotum, í samræmi við breytta mynd þjóðarinnar. Málaflokkur hæstv. ráðherra er í algerri upplausn. Það stendur ekki steinn yfir steini.
Þegar Alþingi samþykkti lög nr. 86/2021, um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, var markmiðið göfugt; að tryggja farsæld barna, bæta líðan þeirra og lífsgæði. Hvað er að frétta af þessu verkefni þegar ár er liðið af ríkisstjórnarsamstarfinu? Innleiðingin hófst 1. janúar 2022 og hefur nú staðið í rúm þrjú ár. Þrátt fyrir mikinn undirbúning eru engar upplýsingar um raunverulegan árangur laganna sem áttu einmitt að bæta stöðu barna. Þrjú ár eru síðan innleiðing hófst. Eru börn í betri stöðu nú en þá? Tölfræðin lýgur ekki. Þau eru í mun verri stöðu.“