- Advertisement -

Daði Már sagðist ekki skilja hvert Vilhjálmur væri að fara

„Ég segi bara: Jesús Kristur. Fasteignamat er sett á með lögum til þess að finna raunverð fasteigna og ríkið setur það og nú kemur hæstvirtur fjármálaráðherra og segir að það sé ónothæft.“ 

Vilhjálmur Árnason.

Alþingi:„Ég vil þakka háttvirtum þingmanni Vilhjálmi Árnasyni fyrir spurninguna en verð að viðurkenna að ég kem hér upp hlaðinn nokkrum vonbrigðum og get með engu móti skilið hvernig háttvirtur þingmaður gat misskilið mig. Ég sagði ekki nokkurn skapaðan hlut um það að fasteignamat væri ónothæft. Þvert á móti sagði ég að það byggði á markaðsverði,“ sagði Daði Már fjármálaráðherra á Alþingi í gær.

„Ég veit ekki hvað í ósköpunum háttvirtur þingmaður er eiginlega að fara. Mér er þess vegna nokkur vandi á höndum að svara spurningu sem fyrst gefur sér svar sem ég veitti ekki og er þar af leiðandi áframhald á skáldsögu sem háttvirtur þingmaður samdi hér í öðru andsvari sínu sem ég hef náttúrlega ekki hugmynd um hvernig hann hefur hugsað sér að ljúka en fel honum það sjálfum.“

Hvað varð það sem Vilhjálmjur sagði? Það kemur hér:

„Ég segi bara: Jesús Kristur.“

„Ég segi bara: Jesús Kristur. Fasteignamat er sett á með lögum til þess að finna raunverð fasteigna og ríkið setur það og nú kemur hæstvirtur fjármálaráðherra og segir að það sé ónothæft. (Daði Már grípur frammí.: „Ég sagði ekkert slíkt.“ )

Þetta er faglegasta og skýrasta matið. Hér talar hæstvirtur ráðherra um að hann sé að einfalda lögin. Allar umsagnir sem koma um þetta mál, fyrir utan frá Skattinum sjálfum, segja að hér sé verið að flækja kerfið, það sé algjörlega óljóst hvað sé átt við. Það er hvergi í þessu frumvarpi skilgreint hvað land er. Það segja líka umsagnir að hér sé verið að hækka verulega erfðafjárskatt á landi sem er ekki skilgreint í frumvarpinu. Fasteignamat hefur það hlutverk samkvæmt lögum sem við setjum hér á Alþingi að finna út rétt mat á fasteignum. Það er lögbundið hlutverk fasteignamats.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: