- Advertisement -

Eigum við þrjá Framsóknarflokka?

Benedikt Jóhannesson, stærðfræðingur og helsti stofnandi Viðreisnar, skrifaði eftirfarandi:

„Stjórnarandstaðan tapaði baráttu sinni fyrir útgerðarmenn. Hélt hún þó áfram hetjulegri baráttu gegn skoðun 70-80% þjóðarinnar lengur en sögur fara af.

Minnihlutinn er þó ekki af baki dottinn heldur ákvað að finna annað mál þar sem hann gæti barist fyrir litlum minnihluta og þjófstartaði umræðu um Evrópumál af svo miklum ákafa að tvær Framsóknarkonur, hvor í sínum Framsóknarflokknum, Sigríður Andersen og Ingibjörg Isaksen, segja í Mogganum í morgun að Evrópuumræðan hafi tekið frá sér allt súrefnið.

Formaður Framsóknarflokksins hins smærri segir í grein í opnu Morgunblaðsins, þar sem hann er settur skör ofar formanni Framsóknarflokksins hins þriðja, Guðrúnu Hafsteinsdóttur, að „ef rætt er um að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið er eðlilegast að þjóðin sjálf hafi upphafsorðið um hvort farið sé í þá vegferð.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Fyrirsögn greinarinnar bendir til þess að hann treysti samt þjóðinni ekki núna. Ólíklegt virðist að sá tími renni upp að allir verði sammála í málinu.

Spurningin hlýtur því að vera: Hvenær er rétti tíminn til þess að kljúfa þjóðina?“

Greinin birti Benedikt á eigin Facebooksíðu.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: