- Advertisement -

Einar Pírati vill aftur á þing

Ég vil takast á við kvótakerfið, auka strandveiðar, leggjast í stórsókn í atvinnu-, heilbrigðis- og menntamálum á landsbyggðunum…

Einar Brynjólfsson skrifar:

Kæru vinir, þá er komið að því!

Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í prófkjöri Pírata í Norðausturkjördæmi vegna Alþingiskosninga sem fram fara þann 25. september næstkomandi. Ég var svo heppinn að fá að sitja á Alþingi 2016-2017 og lærði ansi margt sem ég vil byggja á. Á þessum stutta tíma kom ég að fjölmörgum þingmálum, t.d. varðandi rannsókn á Fjárfestingaleið Seðlabankans, stjórnarskrá, tekjustofna sveitarfélaga, lífeyrissjóðsmál, skattaundanskot, heilbrigðismál, menntamál, fjölmiðlamál, norrænt samstarf, barnaréttarmál, samgöngumál, umhverfismál og strandveiðar svo fátt eitt sé talið.

Ég sækist eftir 1. sæti á lista flokksins í kjördæminu.

Ég vil þróa íslenskt samfélag í átt til jafnréttis og jöfnuðar á öllum sviðum, t.d. með því að ráðast gegn spillingu og óráðsíu, þannig að við öll fáum jöfn tækifæri til frægðar og frama án tillits til flokksskírteinis og/eða efnahags. Ég vil berjast fyrir frelsi einstaklingsins til orðs og athafna og auka aðkomu almennings að lýðræðislegri ákvarðanatöku með því að beita mér fyrir nýrri stjórnarskrá, sérstaklega þeim ákvæðum sem snúa að auðlindum, beinu lýðræði og mannréttindum.

Ég vil takast á við kvótakerfið, auka strandveiðar, leggjast í stórsókn í atvinnu-, heilbrigðis- og menntamálum á landsbyggðunum á grunni sjálfbærni og í sátt við umhverfið. Auk þess vil ég beita mér fyrir gerbreyttu vinnulagi á Alþingi, sem myndi auka gæði, skilvirkni og síðast en ekki síst, auka traust almennings á þeirri stofnun.

Ég sækist eftir 1. sæti á lista flokksins í kjördæminu.

Kveðja, Einar A. Brynjólfsson.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: