- Advertisement -

Jón Pétur með ótrúlegt sjálfsmark

,,Bara á milli 2018 og 2022 ,,töpuðust“ 2 skólaár af 10 skv. OECD þrátt fyrir að íslenskir skólar hafi verið mest opnir allra heimsins skóla í C-19 faraldrinum.“

Jón Pétur Zimsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Jón Pétur Zimzen Sjálfstæðisflokki, sem er nýliði á þingi, vandar eigin flokki ekki meðalið í nýrri grein sem hann skrifaði og birt er á Vísi.

Skólamaðurinn fyrrverandi hefur þungar áhyggjur af menntamálum. Kíkjum aðeins á skrif þingmannsins:

„OECD metur stöðuna í menntakerfinu þannig að hún geti leitt til þess að hvert einkaheimili í landinu verði af 2,5-3,5 milljónum á ári vegna minni framleiðni. Menntun er grjóthart efnahagsmál sem ríkisstjórnin hefur hvorki getu né þekkingu til að taka á.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þessar tölur koma ekki úr tómarúmi, menntakerfið okkar er í hröðu niðurbroti í veldisvexti. Bara á milli 2018 og 2022 ,,töpuðust“ 2 skólaár af 10 skv. OECD þrátt fyrir að íslenskir skólar hafi verið mest opnir allra heimsins skóla í C-19 faraldrinum.

Þessi staða fær enga athygli frá ríkisstjórninni enda hún upptekin að hækka skatta á atvinnulífið. Þessi mikilvægustu mál samfélagsins eru sett í skottið á ráðherrabílunum.“

Þann tíma sem þingmaðurinn tiltekur voru núverandi stjórnarflokka hvergi nærri. Þá var flokkur þingmannsins í ríkisstjórn ásamt Framsókn og VG.

Best að gefa Jóni Pétri orðið á ný:

„Þó að ríkisstjórnin hafi engan áhuga eða metnað fyrir hönd skólabarna hafa foreldrar þeirra og samfélagið það og krefjast tafarlausra raunverulegra aðgerða strax en ekki enn eina stefnuna fulla af orðskrúði bara til að tefja og drepa menntamálum á dreif. Það er ekki í boði að fleiri kynslóðir verði af lögbundinni menntun.

Ríkisstjórnin verður að nenna að setja sig inn í málin og það er komi tími til að hún átti sig á því að menntamál eru grjóthart efnahagsmál þó að grunnskólabörn skipti hana engu máli.

Ísland er eitt ríkasta land í heimi hefur allar forsendur til þess að búa við besta menntakerfi í heimi, það er hægt og það hefur verið gert.“

Ljóst er að gagnrýni Jóns Péturs er ekkert annað en sjálfsmark. Kannski var það tilgangur skrifanna.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: