„Það er auðvitað myndarleg skattahækkun og myndarleg flæking regluverks.“
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Facebook:
Guðlaugur Þór Þórðarson sagði á Alþingi í gær:
„Það er mjög áhugavert að fylgjast með hæstvirtri ríkisstjórn og hennar störfum. Fyrir þá sem ekki muna þá talaði hæstvirt ríkisstjórn og þeir flokkar sem að henni standa um að síðasta ríkisstjórn hefði verið held ég bara sú versta sem Ísland hafði séð, þau töluðu um það eins og einhvers konar náttúruhamfarir. En svo segja þau í öllum málum, í öllum málum, virðulegi forseti: Við erum að gera það sama og síðasta ríkisstjórn. Kílómetragjaldið er skýrt dæmi um það. Það eru einu rök hæstvirtrar ríkisstjórnar fyrir málinu. Nú er það þannig að þegar maður ber orð og efndir saman, ber orð hæstvirtra ríkisstjórnarflokka fyrir kosningarnar saman við efndirnar, þá lítur út fyrir að kosningaloforð stjórnarflokkanna hafi verið öfugmælavísa. Ég held að allir hafi trúað forystumönnum ríkisstjórnarinnar þegar þeir sögðu fyrir kosningar: Við ætlum ekki að hækka skatta, við þurfum ekkert að ræða það. Síðan ætluðu þeir að einfalda regluverk og þeir ætluðu að efla samkeppnishæfni þjóðarinnar.“
„Við vorum í sjö tíma í gær að ræða kílómetragjaldið. Það er auðvitað myndarleg skattahækkun og myndarleg flæking regluverks. Hagaðilar, bílaleigurnar, upplýsa um það að kostnaðurinn geti verið 1,5 milljarðar á ári út af flækingu regluverks ríkisstjórnarinnar, 1,5 milljarðar á ári. Auðvitað vitum við svo að samkeppnishæfnin mun versna og er íslensk ferðaþjónusta nú í mikilli samkeppni við aðrar þjóðir.
Þetta er kannski þannig að kosningaloforðin hafi verið öfugmælavísur. Í það minnsta lítur það þannig út þegar við sjáum verk þessarar verkstjórnar.“