- Advertisement -

Læknarnir eru sex en þyrftu að vera tólf

Alþingi: Ingvar Þóroddsson Viðreisn ræddi stöðuna á lyflækningasviði Sjúkrahússins á Akureyri. Hann vakti athygli á eftirfarandi:

Í 7. gr. b. í lögum um heilbrigðisþjónustu segir, með leyfi forseta:

„Hlutverk Sjúkrahússins á Akureyri er m.a. að vera kennslusjúkrahús, varasjúkrahús Landspítala, annast kennslu nema í grunn- og framhaldsnámi, taka þátt í að veita háskólamenntuðum starfsmönnum sérmenntun í heilbrigðisgreinum í samstarfi við menntastofnanir og aðrar heilbrigðisstofnanir og gera fagfólki kleift að sinna fræðastörfum við háskóla auk þess að stunda og veita aðstöðu til vísindarannsókna.“

Síðam sagði Ingvar: „Alþingi hefur sem sagt kveðið á um það með lögum að Sjúkrahúsið á Akureyri skuli vera varasjúkrahús Landspítala. Þróunin aftur á móti hefur verið sú að mönnunargatið á sjúkrahúsinu hefur stækkað og stækkað. Til að mynda á lyflækningasviði eru rúm sex fastráðin stöðugildi um þessar mundir en samkvæmt kortlagningu á þjónustunni sem fór fram nýlega ættu þau í rauninni að vera tólf. Þetta hefur í för með sér meiri og meiri kostnað við það að senda sjúklinga suður. Ég skora á hæstvirta ríkisstjórn að nýta þann tíma sem gefist hefur með frestun á uppsögnum ferliverkasamninga til að ganga strax í það verk að tryggja mönnun á Sjúkrahúsinu á Akureyri ásamt stjórn sjúkrahússins. Pólitíkin hefur þar hlutverki að gegna en hún hefur úr tækjum og tólum að spila til að skapa skilyrði svo sérfræðilæknar sem og annað heilbrigðisstarfsfólk sjái það sem raunhæfan og spennandi kost að flytja út á land og starfa þar sem vöntun er á starfsfólki.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: