- Advertisement -

Óskammfeilni sjávarútvegsins

Sif Sigmarsdóttir skrifar:

Vilji sægreifarnir vinna landsmenn á sitt band væri þeim nær að greiða þeim sanngjarna rentu af afnotum á þjóðarauðlindinni frekar en að ausa peningum í aumkunarverðan auglýsingaáróður.

Ný skoðanakönnun Maskínu um viðhorf fólks til auglýsinga Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi gegn veiðigjaldi ríkisstjórnarinnar sýnir að 66 prósent fólks finnst auglýsingarnar slæmar fyrir málstaðinn. Tæplega 70 prósent fólks segist hlynnt frumvarpinu um hækkun veiðigjalds.

Ári fyrir síðustu Alþingiskosningar sýndi könnun á vegum Matvælaráðuneytisins að 55,8 prósent landsmanna teldu sjávarútveginn spilltan. Aðeins 8,7 prósent töldu hann heiðarlegan.

Orð sem borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, Hjálmar Sveinsson, lét falla af því tilefni hafa setið í mér. Hann furðaði sig á því tómlæti sem talsmenn útgerðarinnar sýndu því litla áliti sem Íslendingar hefðu á greininni. „Ef allt væri með eðlilegum hætti ættum við að vera jafn stolt af honum og Frakkar af sinni merkilegu rauðvínsgerð eða ostagerð,“ sagði Hjálmar.

Útvegsmenn svipta okkur fleiru en arðinum af auðlindinni.

Ef allt væri með „eðlilegum hætti“ værum við jafn stolt af íslenska fiskinum og Frakkar er af Châteauneuf-du-Pape rauðvíninu og Camembert ostinum. Svo er hins vegar ekki.

Óskammfeilni sjávarútvegsins sviptir þjóðina tilfinningalegri hlutdeild í fiskimiðunum. Það finnur enginn til stolts gagnvart íslenska fiskinum eins og við erum stolt af söngkonunni Björk og útflutningi á íslensku skyri.

Vilji sægreifarnir vinna landsmenn á sitt band væri þeim nær að greiða þeim sanngjarna rentu af afnotum á þjóðarauðlindinni frekar en að ausa peningum í aumkunarverðan auglýsingaáróður.


Greinin er fengin af Moli með morgunkaffinu sem Sif skrifar einu sinni í viku. Hún hefur heimilað birtingu hér.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: