- Advertisement -

Reikna með frumvörpum í haust – svarthol í kerfinu

Sigurjón Þórðarson alþingismaður skrifaði:

Það er verið að ráða nýjan forstjóra Hafró og þá hlýtur að vera litið til þess að ráða mann sem er tilbúinn að taka efnislega faglega gagnrýni á fiskveiðiráðgjöfina til umfjöllunar.

Stjórnmál: „Mér finnst Vigfús vera fullbráður í því að ætla að gera Dag að forsætisráðherra þó svo ég hafi skilning á óþolinmæði hvað varðar ákveðnari skref til breytinga, en það blasa við augljósar lausnir á mörgu því sem þarf að breyta. Nú er til meðferðar frumvarp í þinginu sem mun auðvelda stjórnvöldum að taka á milliverðlagningu þ.e. Verðlagsstofa fái skýra heimild til upplýsinga um útflutningsverðmæti sjávarafla. Í raun ætti frumvarpið að vera óþarft þar sem það er skýr heimild í 45 gr. tollalaga fyrir skattinn til samstarfs við önnur stjórnvöld við að framfylgja lögum. Það er afar einkennilegt viðhorf hjá skattinum þar sem hann virðast líta á sig sem eitthvert svarthol á upplýsingar m.a. þar sem er uppi rökstuddur grunur um misferli t.d. með verðlagningu á loðnu. Ef rétt er þá verður skatturinn af háum fjárhæðum þess vegna. Það er tilefni til þess að hreinsa út úr kerfinu svona stíflur.

Það er verið að ráða nýjan forstjóra Hafró og þá hlýtur að vera litið til þess að ráða mann sem er tilbúinn að taka efnislega faglega gagnrýni á fiskveiðiráðgjöfina til umfjöllunar.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ég er sammála Vigfúsi hvað varðar: „Þetta eru gríðarlega stór og alvarleg mál sem skipta samfélagið gríðarlega miklu máli og meira máli en margt annað. Þar má nefna milliverlagningu á sjávarafurðum, vigtarsvindl, ísprósentusvindl, útgerðir yfir kvótaþaki, árangursleysi Hafrannsóknarstofnunnar, skort á öflugu eftirliti,samþjöppun auðs og valds, strandveiðar og svo margt, margt fleira.“

Stundum á það við að sá kemst lengst sem hægt fer og vonandi á það við um skynsamar og réttlátar breytingar í sjávarútvegi.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: