- Advertisement -

Ríkisstjórnin leggur til að 140 verði sagt upp störfum á hjúkrunarheimilum

„Rétt í þessu var að berast mjög alvarlegt bréf til formanns velferðarnefndar um að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hafi lagt til að 140 manns, annars vegar í Vestmannaeyjum og hins vegar í Fjarðabyggð, skuli sagt upp vegna ákvarðana um rekstur hjúkrunarheimila, vegna yfirtöku á HSA og HSU, þeim hjúkrunarheimilum sem voru í rekstri sveitarfélaga. Hæstvirtur forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, veit af þessu. Hún var vöruð við og það var að koma í ljós að ríkisstjórnin ætlar ekki að hlífa þessum konum og fólki af erlendum uppruna heldur gera sveitarfélögunum að segja upp 140 manns á þessum tímum,“ sagði Helga Vala Helgadóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis, á þingi fyrr í dag.

„Alþingi hefur ríkt eftirlitshlutverk og verður að rækja það af festu. Það er hlutverk okkar allra sem eigum sæti hér á þingi að passa upp á að framkvæmdarvaldið framfylgi þeim ákvörðunum sem Alþingi tekur. Það er það sem við erum m.a. að gera í nefndarstörfum, að kanna hvernig framkvæmdarvaldið rækir skyldur sínar. Það er það sem við höfum verið að fjalla um í háttvirtri velferðarnefnd, hvernig hefur tekist til með rekstur hjúkrunarheimila, hvernig hefur tekist til með þá fjármuni sem löggjafinn, fjárveitingavaldið, ákveður hjúkrunarheimilunum,“ sagði Helga Vala.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: