- Advertisement -

Sjálfstæðisflokkurinn nötrar

„Hvar er verið að sækja fjármagnið? Með því að afnema samnýtingu efstu skattþrepa.“

Ása Berglind Hjálmarsdóttir.

Alþingi: Ása Berglind Hjálmarsdóttir Samfylkingu sagði:

Virðulegur forseti. Jóhannes úr Kötlum orti:

Grýla hét tröllkerling

leið og ljót

með ferlega hönd

og haltan fót.

Ef góð voru börnin

var Grýla svöng,

og raulaði ófagran

sultarsöng.

„Málflutningur minni hlutans minnir um margt á Grýlu gömlu. Trekk í trekk hefur hann hlaupið af stað með týnda skó eða meinta skattorma sem hann hendir í súpupott með miklu magni af misskilningi og dassi af upplýsingaóreiðu, hrærir svo í þessum pottum af einstakri elju. Á meðan ný ríkisstjórn er upptekin við að laga samgöngukerfið, heilbrigðiskerfið og ekki síst fjármálin eftir ótrúlega vanrækslu síðustu ríkisstjórna, þá er það besta sem minnihlutinn hefur fram að færa útúrsnúningar og gagnrýni á þá staðreynd að það þurfi raunverulega að fjármagna þessa risavöxnu innviðaskuld sem þau skildu eftir.

Sultarsöngurinn er rosalegur og yfir hverju, frú forseti? Jú, við skulum skoða það. Hvar er verið að sækja fjármagnið? Með því að afnema samnýtingu efstu skattþrepa. Skattaívilnun í boði fyrri ríkisstjórna sem er helst nýtt af einstaklingum í efstu tekjutíundinni. Þetta hefur minni hlutinn reynt að mála upp sem afnám samsköttunar sem muni bitna á öllum sem samnýta persónuafslátt. Það er einfaldlega rangt. Hins vegar á að afnema persónuafslátt þeirra sem lifa einungis á fjármagnstekjum sem er að uppistöðu eignamestu hópar samfélagsins.

Innleiðing á nýju kerfi til þess að fjármagna vegina okkar í stað þess kerfis sem var að hruni komið, kerfi sem hefur virkað vel fyrir rafbíla í tvö ár. Í staðinn mun bensín og olía lækka svo um munar. Yfir þessu nötrar Sjálfstæðisflokkurinn þrátt fyrir að hugmyndin að kerfinu sé í grunninn kominn frá þeim. Vörugjöld á nýja mengandi bíla sem er mjög eðlilegur liður í því að flýta fyrir orkuskiptum. Á hverjum bitna þessi gjöld? Á þeim sem hafa efni á að kaupa sér glænýja bíla úr kassanum. Á sama tíma verða engin vörugjöld á rafmagnsbílum. Sanngjörn gjöld af nýtingu auðlinda þjóðarinnar sem minni hlutinn sá ofsjónum yfir í sumar en er að átta sig á núna að var óþarfa upphlaup eftir allt saman. Jöfnun raforku, gjald sem ríkið innheimtir af veitufyrirtækjum og nýtir svo til niðurgreiðslu á raforku í dreifðari byggðum, sannkallað sanngirnismál.

Þetta eru nú öll ósköpin, ljóta skattagrýlan sem minni hlutinn er að reyna að mála upp. Virðulegi forseti. Ég segi bara eins og Guðríður, vinkona mín. Haldið bara áfram ykkar góðu störfum. Þau munu ekki trufla okkar vegferð í að laga Ísland.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: