- Advertisement -

Snorri spyr um útlendinga

Alþingi:

Snorri Másson Miðflokki:

Hvað erum
við að gera?

„Atvinnuleysisbætur fara að meiri hluta til til erlendra ríkisborgara, 13 milljarðar kr. komnir bara á fyrstu sjö mánuðum þessa árs. Örorku- og endurhæfingarlífeyrir frá Tryggingastofnun til erlendra ríkisborgara hefur farið úr 1,3 milljörðum árið 2010 í 16,6 milljarða árið 2025, þ.e. 13-faldast. Ofan á þetta eykst sífellt beinn mánaðarlegur fjárhagsstyrkur frá sveitarfélögum til erlendra ríkisborgara. Þeir eru orðnir um 70 prósent reikningsins hjá Reykjavíkurborg sem telur nú fleiri milljarða á ári. Maður hefði haldið að slíkur styrkur ætti að vera eins konar neyðarráðstöfun fyrir borgarbúa sem eiga ekki önnur úrræði en annað kemur á daginn. Morgunblaðið hefur gert grein fyrir því sem virðist vera augljós misnotkun að undanförnu þar sem menn hafa komið hingað til lands, aldrei verið á vinnumarkaði, þegið þennan styrk árum saman, jafnvel fimm eða sex ár, og almenningur fréttir fyrst af málinu þegar flett er ofan af því að einn slíkur, sem hafði komið sér svo makindalega fyrir á kostnað skattgreiðenda, reyndist vera sakborningur í manndrápstilraun í bílakjallara.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Telur hún
þetta sanngjarnt?

„Hvað erum við að gera? Er ekki eitthvað bogið við það að í sömu viku og maður les um svona nokkuð í fjölmiðlum mæti ráðherra innflytjendamála í viðtöl og lýsi því að stjórnvöld séu búin að ná tökum á innflytjendamálum á Íslandi? Það rökstyður ráðherra með því að nú hægi á EES-aðflutningi vegna frosts í hagkerfinu, EES-aðflutningi sem sami hæstv. ráðherra hefur vel að merkja sagt að hann hafi ekki minnstu áhyggjur af. Það eru vonbrigði, virðulegur forseti, að ríkisstjórnin hafi ekki verið tilbúin til þess hér fyrir þinglok í júní að styðja tillögu okkar í Miðflokknum um takmörkun á dvalarleyfisveitingum þar sem þeim bauðst að sýna í verki að þau hefðu eitthvað annað í hyggju en óbreytt ástand. En fyrst stjórnvöld eru ekki tilbúin til að breyta lögunum er þó það minnsta sem við getum gert að tryggja að þeim sé framfylgt. Samkvæmt lögum á ekki að vera hægt að fá hér dvalarleyfi án þess að hafa trygga framfærslu upp á eigin spýtur. Hvernig stendur þá á því að menn haldi hérna dvalarleyfum árum saman lifandi á styrk frá hinu opinbera?

Ætlar hæstvirtur ráðherra, spyr ég, að láta þessa lögleysu viðgangast? Telur hún þetta sanngjarnt gagnvart skattgreiðendum eða er hún tilbúin til að stíga nauðsynleg skref, stórherða þessi skilyrði, hætta að gefa út þessi dvalarleyfi og afturkalla þau sem hafa verið fengin ólöglega?“

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra:

…ákveðinn misskilningur
hjá þingmanninum…

„Háttvirtur þingmaður spyr mig um aðgerðir hvað varðar dvalarleyfi. Því er fljótsvarað: Á þingmálaskrá haustsins er frumvarp til heildarendurskoðunar á dvalarleyfiskerfinu. Þar verða stigin markviss skref í þá átt að ná stjórn á þeim málaflokki. Á síðasta þingi fórum við í aðgerðir þar sem við vorum að horfa á alþjóðlega vernd. Næst á dagskrá er dvalarleyfiskerfið og í þriðja fasa verður endurskoðun á reglum um ríkisborgararétt. Þessi ríkisstjórn er að ná fram árangri í málaflokknum og ég myndi segja að leiðarstefið sé að við séum loksins að komast á þann stað að vinna út frá stefnu í stað þess stefnuleysis sem hér hefur ríkt árum saman með því einmitt að gera kröfur sem þingmaðurinn nefnir og ég er honum hjartanlega sammála. Auðvitað eiga að fylgja því kröfur að koma til landsins og það eiga að fylgja því kröfur til okkar líka, t.d. hvað varðar fólk sem kemur hingað á forsendum alþjóðlegrar verndar, að fólk fái sómasamlegar móttökur. Við erum að ná stjórn á málaflokknum.

Ég held hins vegar að það sé ákveðinn misskilningur hjá þingmanninum þegar hann spyr mig um hvernig bótagreiðslum sé háttað. Það er málaflokkur sem heyrir undir annan ráðherra. En ég get þó sagt þetta: Vinnumálastofnun hefur aukið eftirlit með greiðslu atvinnuleysisbóta og annarra bóta og það er aðgerð sem kom fram með nýrri stjórn. Við erum að vinna þennan málaflokk skref frá skrefi; byrjum á alþjóðlegri vernd. Núna eru það dvalarleyfi, næst er það ríkisborgararétturinn.

En af því að háttvirtur þingmaður nefnir að við höfum ekki stutt einstakar tillögur hans þá vil ég minna hann á að hans flokkur studdi ekki frumvarp ríkisstjórnarinnar um brottfararstöð, sem er mikilvægt verkfæri við að koma því fólki úr landi sem á að fara úr landi og fer ekki úr landi. Hans flokkur studdi okkur heldur ekki í þeim aðgerðum þegar við erum að flytja erlenda sakamenn úr landi.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: