
Sigmundur Davíð Gunnlausson skrifar:
„Af innihaldi fréttarinnar að dæma virðast borgaryfirvöld gera ráð fyrir að staðfesta ákvörðunina þrátt fyrir frestun.
Vonandi gera þau það og þá mun ég hrósa þeim.
Áformuð staðsetningin moskunnar var alltaf fráleit. Hún virtist valin af þáverandi meirihluta til að ögra borgarbúum.
Lóðin er á miðpunkti Reykjavíkur (við gatnamót Miklubrautar og Sæbrautar).
Til áminningar um táknrænt gildi staðarins er þar gjarnan stórt merki Reykjavíkur, myndað með blómum. Merkinu er ætlað að blasa við þeim sem koma að gömlu borgarmörkunum úr úthverfunum eða utan af landi.
Lóðin átti að vera gjöf borgarbúa sem þó voru ekki spurðir (Hjálpræðishernum var gert að greiða fyrir sína lóð í nágrenninu).
Söfnuðurinn hefði þó þurft að fjármagna framkvæmdirnar og starfsemina. Ýmsir, úr ólíkum stjórnmálaflokkum, hafa vakið athygli á því að mikilvægt sé að fylgjast með því hvaðan fjármagn í slíkt sé upprunið.
Það skiptir verulegu máli og hefur áhrif á starfsemina eins og fjölmörg dæmi sýna. Í sumum löndum, með meiri reynslu af þessum málum en við, er ákveðnum hreyfingum eða ríkjum bannað að fjármagna slíka starfsemi.
Hér hafa stjórnvöld allt of oft verið allt of værukær.“