Hvers vegna lætur ríkisstjórnin hjá líða í tvö ár að skila sínu en klappar sér svo á bakið eins og enginn sé morgundagurinn…
Guðrún Hafsteinsdóttir.
Þessi ríkisstjórn hefur endurskoðað þær áætlanir og flýtt því að ná jafnvægi í útgjöldum ríkisins um eitt ár.
Daði Már Kristóferson.
Alþingi:
Guðrún Hafsteinsdóttir:
„Þegar talið berst að hinu bagalega efnahagsástandi sem nú ríkir hér á landi er það fyrsta og að jafnaði það eina sem hæstvirtir ráðherrar ríkisstjórnarinnar nefna að þetta sé nú allt saman einhverjum öðrum um að kenna. Þau benda yfirleitt á útgjöld síðustu ríkisstjórnar, sem voru reyndar mun minni en þau hefðu verið ef hlustað hefði verið á kröfur núverandi ríkisstjórnarflokka um enn meiri útgjöld á þeim tíma. Það vekur furðu að á sama tíma og núverandi ríkisstjórn fussar og sveiar yfir hallarekstri fyrri ríkisstjórnar í miðjum heimsfaraldri og náttúruhamförum ákveður hún að auka hallann í sinni stjórnartíð. Það hefði verið hægt að skila ríkissjóði réttum megin við núllið strax árið 2025 með styrkri efnahagsstjórn en ríkisstjórnin ákvað að bæta enn frekar á hallann. Áætlun ársins 2026 gerir svo ráð fyrir töluverðri framúrkeyrslu; það sem fyrst átti að verða 15 milljarða halli stefnir nú í 68 milljarða halla. Þá var ekkert Covid, þá voru engar náttúruhamfarir.
Því vil ég spyrja hæstvirtan fjármála- og efnahagsráðherra: Hvers vegna var ekki strax hafist handa við aðhald í ríkisfjármálunum þannig að verðbólgan gæti haldið áfram að þokast nær markmiði og vextir haldið áfram að lækka? Hvers vegna lætur ríkisstjórnin hjá líða í tvö ár að skila sínu en klappar sér svo á bakið eins og enginn sé morgundagurinn þegar verðbólgan er aftur á uppleið og vextir hækka á ný?“
Daði Már Kristófersson:
„Ég þakka háttvirtum þingmanni Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir spurninguna. Nú er það svo að hér er nokkuð frjálslega farið með staðreyndir vegna þess að háttvirtur þingmaður, sem var ráðherra í síðustu ríkisstjórn, veit að síðasta fjármálaáætlun þeirrar ríkisstjórnar gerði ráð fyrir hallarekstri fram til ársins 2028. Þessi ríkisstjórn hefur endurskoðað þær áætlanir og flýtt því að ná jafnvægi í útgjöldum ríkisins um eitt ár.
…framúrkeyrsla ríkisins
er mun minni hjá
þessari ríkisstjórn…
Það er mjög áhugavert að háttvirtur þingmaður geri framúrkeyrslu að umræðuefni í þessum ræðustól. Háttvirtum þingmanni láðist hins vegar að taka fram að framúrkeyrsla á kostnaði ríkisins var mun meiri og hefur farið minnkandi. Hún nefnir einungis nettóniðurstöðuna, þ.e. halla að frádregnum ófyrirséðum tekjum. Ófyrirséðar tekjur eru hins vegar ekki eitthvað sem reikna má með að séu að jafnaði og tilfellið er að það er einmitt á tíma þessarar ríkisstjórnar sem tekist hefur verið á við t.d. framkvæmd fjárlaga þannig að framúrkeyrsla ríkisins er mun minni hjá þessari ríkisstjórn en hún var að jafnaði hjá síðustu ríkisstjórn.
Það er mjög athyglisvert með eftiráskýringar eins og þessar að kvartað sé yfir framkvæmd sem var umfram áætlanir á kosningaári hjá síðustu ríkisstjórn og ætlast til þess að fólk taki slíka gagnrýni trúanlega.“