- Advertisement -

Til hvers var makríllinn kvótasettur?

Alþingi:

„Stjórnarskrá Íslands kveður á um að öllum sé frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir kjósa,“ sagði Sigurjón á Alþingi fyrr í dag.

„Þessu frelsi má þó setja skorður með lögum enda krefjist almannahagsmunir þess. Í fyrra var stofnstærð makríls endurmetin aftur í tímann, þ.e. stærð stofnsins frá árinu 2010 og til ársins 2020. Samkvæmt því endurmati sögðu sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar að stofninn hafi verið ríflega 400%, fjórfalt stærri, en áður var áætlað á umræddu árabili. Í framhaldi af þessum tíðindum benti ég á að þar sem stofninn hefði í raun verið mun stærri en áður var áætlað hefði aldrei verið um neina ofveiði að ræða eins og haldið hafði verið fram af Hafró, miklu frekar augljósa vanveiði. Það var vanveiði á þessu tímabili.

Í október í fyrra vildi Hafró grípa í neyðarhemil á grundvelli þess að Alþjóðahafrannsóknaráðið gaf út svarta spá fyrir makrílinn. Reiknilíkanið sýndi nefnilega að hrygningarstofninn væri kominn undir varúðarmörk. En hvað gerist nú í haust? Það er nýr tónn. Það er 102% aukning á veiðum. Í norskum sjávarútvegi fer fram mikil umræða um þessa ónákvæmu jójó-ráðgjöf. Ef farið er með hlutlægum hætti yfir söguna og þessa gríðarlegu óvissu í ráðgjöf gefur augaleið að það voru engir almannahagsmunir að leiðarljósi þegar makríllinn var kvótasettur. Það var eitthvað annað.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Enn ríkir gríðarlega mikil óvissa. Í fyrra átti að grípa í neyðarhemil en núna er 100% aukning. Það er því rétt að bregðast við og skoða hvort það hafi verið rétt að kvótasetja og hvort við eigum ekki að snúa við blaðinu, auka frelsið og fyrir þá sem vilja fara varlega og koma í veg fyrir offjárfestingu má þess vegna hafa makrílveiðar frjálsar fyrir báta undir 100 tonnum. Setjum stjórnarskrána og atvinnufrelsi í forgang hér á hinu háa Alþingi.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: