- Advertisement -

Bókun 35: Samninginn getum við ekki og megum ekki vanrækja

Alþingi / bókun 35

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur mælt fyrir frumvarpi um staðfestingu á bókun 35. Hér er upphaf ræðu utanríkisráðherra:

„Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið sem varðar innleiðingu svonefndrar bókunar 35 við EES-samninginn. Þetta er mál sem hljómar eins og pínulítið ópersónuleg lögfræði, en um hvað snýst málið? Þetta snýst í grunninn um fólk, hvort réttindi sem Alþingi hefur þegar samþykkt að fólk eigi að njóta séu raunveruleg réttindi þegar á reynir eða bara orð á blaði. Þá kemur að okkur stjórnmálafólkinu í þessum sal: Viljum við að fólk njóti þeirra réttinda? Við höfum þegar dæmi sem við þekkjum um íslenska konu, móður og lækni sem naut ekki þeirra réttinda í fæðingarorlofi sem henni bar og þurfti að leita til dómstóla. Það er kaldhæðnislegt að þegar henni voru loksins dæmdar skaðabætur var barnið sem fæðingarorlofið snerist um komið á grunnskólaaldur.

Það er mál að linni. Það er kominn tími til þess að við afgreiðum þetta. Niðurstaðan í þessu máli var alveg skýr og þess vegna segi ég: Nú eru aðstæður, nú er vilji, myndi ég halda líka, m.a. eftir allt sem var sagt í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar, til þess að bera ábyrgð, sýna ábyrgð og klára þetta mál af því að þetta snýst á endanum um réttindi fólks.

Hann greiðir fyrir
velmegun okkar
Íslendinga.

EES-samningurinn er einn mikilvægasti alþjóðasamningur sem við Íslendingar höfum gert. Það hefur verið margsagt í þessum sal en líka fyrir utan hann. Við þurfum að axla ábyrgð til þess að fylgja honum eftir. Hann hefur í meira en þrjá áratugi tryggt íslenskum einstaklingum og fyrirtækjum aðgang að sameiginlegum markaði Evrópu. Hann greiðir fyrir velmegun okkar Íslendinga, kemur íslenskri framleiðslu á markað, veitir fólkinu okkar tækifæri til menntunar og atvinnu, og tengir íslenskt hugvit og nýsköpun við fjármagn til frekari vaxtar. Samningurinn er meginstoð efnahagslegra tengsla Íslands við Evrópu. Á honum byggjast réttindi íslenskra borgara og fyrirtækja um allt Evrópska efnahagssvæðið. Við reiðum okkur á hann í núverandi ölduróti á alþjóðavettvangi. Þennan samning getum við ekki og megum ekki vanrækja. Það er ekki náttúrulögmál að hann virki, heldur byggist hann á að samningsaðilar standi með honum af heiðarleika og af alúð.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: