Alþingi:
Ingibjörg Isaksen Framsóknarflokki:
„Í desember árið 2023 sagði núverandi forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, með leyfi forseta: „Nú verður að milda höggið fyrir heimilin.“ Jafnframt sagði hún: „Á tímum hárra vaxta og verðbólgu er ótrúlegt að ríkisstjórnin sé að minnka stuðning við skuldsett heimili og leigjendur.“
Í umræðu hér á Alþingi gagnrýndi hæstv. forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar sérstaklega skerðingu vaxtabóta og þar sagði um vaxtabótakerfið, með leyfi forseta, að það næði til „tekjulægsta fólksins með þyngstu greiðslubyrðina“.
Nú er staðan sú að undir hennar forystu leggur ríkisstjórnin fram fjárlög þar sem vaxtabætur eru felldar niður, barnabætur standa í stað annað árið í röð á sama tíma og verðlag hækkar og ýmis opinber gjöld hækka. Þetta gerist á sama tíma og heimilin glíma áfram við hátt vaxtastig og þráláta verðbólgu. Þegar við leggjum þessar breytingar saman þá sjáum við að höggið getur orðið verulegt fyrir fjölskyldur í landinu og hlutfallslega þyngra fyrir tekjulágar fjölskyldur.
Þess vegna langar mig að spyrja hæstvirtan forsætisráðherra: Hvað hefur breyst? Ef vaxtabótakerfið náði þá, eins og hæstv. ráðherra sagði sjálf, til tekjulægsta fólksins með þyngstu greiðslubyrðina, hvers vegna telur hún rétt að fella þann stuðning alveg niður núna? Telur hæstvirtur forsætisráðherra að fjárlagafrumvarpið, eins og það liggur fyrir, standist þá eigin áherslur ríkisstjórnarinnar um að breiðu bökin eigi að bera byrðarnar? Er það mat hæstvirts forsætisráðherra að staða tekjulágra og skuldsettra heimila sé nú orðin svo góð að þau þurfi ekki lengur þennan stuðning?“
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra:
„Hér er verið að vitna í fyrri kjarapakka Samfylkingarinnar frá 2022 og 2023 þar sem reyndar allar okkar tillögur voru fullfjármagnaðar upp á punkt og prik og reyndar var seinni tillögupakkinn, þegar kom að sparnaðartillögum, með 4 kr. að auki miðað við útgjöld. Það er auðvitað inntakið í því sem við erum að gera núna í rekstri ríkissjóðs eftir mörg hundruð milljarða kr. hallarekstur undanfarinna ára, þ.e. að loka þessu gati, vegna þess að þrátt fyrir að já, verðbólga sé of há núna, í tæplega 6%, og þrátt fyrir að vextir séu já, of háir, í 8%, þá gengum við í gegnum tímabil á síðasta kjörtímabili þar sem verðbólgan var 10% á sama tíma og við vorum að ræða umræddar tillögur. Verðbólgan var 10% og vextir um 9%. Það er þrátt fyrir allt skárri staða en þá var. Við höfum lagt á okkur að reyna eftir mesta megni að draga úr þenslunni í íslensku samfélagi sem skapast hefur á undanförnum árum með þessum yfirgengilega hallarekstri til að minnka pressuna sem kemur frá ríkinu. Það er að virka. Það er undirliggjandi verðbólga sem hefur tekið að hjaðna en við erum auðvitað að lenda líka í ákveðnum vandræðum varðandi olíuverðshækkanir.
Hvað varðar vaxtabótakerfið get ég sagt að mér hefur reyndar þótt miður hvernig þróunin var í því kerfi í langan tíma. Þegar við tókum við voru 800 millj. kr. eftir í því kerfi. Síðasta ríkisstjórn drap vaxtabótakerfið. Það var margir, margir milljarðar, tugmilljarðar á sínum tíma. Síðasta ríkisstjórn gekk endanlega frá því kerfi. Það var tekin sú ákvörðun, í staðinn fyrir að greiða út þær 800 millj. kr. sem eftir voru, að beina þeim í önnur úrræði. Við höfum t.d. tekið að okkur að reyna að stórefla hlutdeildarlánakerfi sem ég veit að síðasta ríkisstjórn kom á, en við höfum bætt betur í þar og reynt að koma þessu í betri farveg vegna þess að það er mikið verk að ætla að endurreisa eitthvað sem er tekið fullkomlega í sundur á einum stað. En það að stöðva hallareksturinn er eitthvað sem við sjáum sem besta einstaka tólið akkúrat núna til að taka á þessu.“