- Advertisement -

„Brjálæðingar“ flögguðu mynd af Þorgerði Katrínu utanríkisráðherra

Alþingi:

Sigríður Á. Andersen Miðflokki:

„Það eru nákvæmlega þrjú ár síðan heimurinn vaknaði upp við hryllingsfréttir frá Ísrael. Fréttir sem ég held að fáir hafi trúað, a.m.k. fyrstu klukkutímana, ef ekki í nokkra daga, eftir að fréttir bárust af hræðilegum árásum á Ísrael af hálfu Palestínumanna. 7.000–8.000 vígamenn réðust inn í Ísrael frá Gaza og drápu þar 1.200 manns. Flest af þeim voru ungmenni og börn en fullorðnir voru auðvitað líka í þeim stóra hópi. Þetta voru hræðilegar árásir sem ég held að hafi tekið heiminn marga mánuði að átta sig á, ef menn eru nú þegar búnir að átta sig á hryllingnum sem þar fór fram. Frá þessum degi hefur þessi vinaþjóð okkar Ísrael verið í stríði. Hún er enn þá í stríði sem vonandi sér fyrir endann á en stríðið varir enn.

Á þingi Sameinuðu þjóðanna á dögunum fann hæstvirtur utanríkisráðherra Íslands sig knúinn til þess að atyrða forsætisráðherra Ísraels fyrir það eitt að vera með ákall um það á þingi Sameinuðu þjóðanna að fulltrúar ríkja Sameinuðu þjóðanna sætu undir ræðu hans. Hæstvirtur utanríkisráðherra Íslands sá sig knúinn til að atyrða forsætisráðherra Ísraels fyrir þetta. Um helgina vaknaði ég upp við frétt sem ég trúði jafn illa og ég trúði hryllingsfréttunum fyrir þremur árum, frétt um það að í Teheran í Íran, aðalstuðningsríki Hamas samtakanna og Palestínumanna, fjármögnunaraðila þessa hryllingsstríðs fyrir þremur árum, væri núna verið að hampa utanríkisráðherra Íslands á skiltum í þeirri borg. Utanríkisráðherra hefur ekki viljað tjá sig um málið. Ég kalla eftir því að utanríkisráðherra Íslands tjái sig um þetta mál. Sjálf myndi ég ekki una mér hvíldar fyrr en þetta skilti í Íran, hjá klerkastjórninni og þeim brjálæðingum sem þar stjórna, með ljósmynd af sjálfri mér hefði verið tekið niður.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: