Alþingi:
Jón Pétur Zimsen Sjálfstæðisflokki:
„Það var fróðlegt að hlusta hér fyrr í dag á ræður stjórnarliða þar sem, ef ég heyrði rétt, menn jafnvel fögnuðu því ef menn myndu tapa málinu í Lúxemborg. Hvort menn muni grípa til ýtrustu varna ef málið fer fyrir EFTA-dómstólinn, ég vil helst ekki ætla neinum annað en það, en það er ýmislegt sem var sagt t.d. í sumar sem vekur upp ákveðin hugrenningatengsl. Svo ég vísi í viðtal við hæstvirts utanríkisráðherra við Heimildina 1. apríl 2026 þá segir hæstvirtur ráðherra þar orðrétt, með leyfi forseta:
„Það mun hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir almenning í landinu ef við segjum nei.“
Ég hef velt því fyrir mér hvort það að draga fram bókun 35 núna sem svona smjörklípu sé aðferð til að beina sjónum almennings frá vangetu ríkisstjórnarinnar til að taka á málum hér innan lands, dreifa athyglinni, klína smjöri í feld kattarins þannig að hann hætti að láta illa, að við pælum ekki lengur í þessu. Ég vil ekki trúa því að hæstvirtur ráðherra muni ekki skipa sterkan flokk manna sem fer út og ver hagsmuni okkar fyrir EFTA-dómstólnum. En hvað veit maður? Það er ýmislegt látið falla hér í pontu og ég vona alla vega að við munum verja stöðu okkar sem allra, allra best ef málið fer fyrir EFTA-dómstólinn sem það mögulega gerir.“