- Advertisement -

Vingulsháttur í pólitík er ekki í þágu íslenskra hagsmuna

Stjórnmál:

Brot af grein sem Þorgerður Katrín skrifaði. Greinin birtist í Mogga dagsins:

„Forysta Sjálfstæðisflokksins kom nýverið heim frá Washington og gerði mikið úr því að Ísland ætti að stefna að fríverslunarsamningi við Bandaríkin.

Svo kom utanríkisráðherra Bandaríkjanna sjálfur til Íslands og sagði hreint út að að mati bandarískra stjórnvalda væri tími hefðbundinna fríverslunarsamninga liðinn um fyrirsjáanlega framtíð. Bandaríkin vildu frekar ræða annars konar tvíhliða viðskiptasamninga. Þetta hefur reyndar áður komið fram í samtölum milli ríkjanna.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Það er auðvelt að koma fram með stórar yfirlýsingar. En það er líka ágætt að leggja við hlustir um hvað raunverulega er á borðinu. Við eigum sannarlega að sækja hvert tækifæri sem býðst í viðskiptum við Bandaríkin og finna þær leiðir sem eru færar. En þá verðum við líka að lifa í raunheimum.

Það sama á við um EES-samninginn. Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins hefur sjálf kallað hann hornstein í utanríkis- og efnahagsstefnu Íslands. Það eru orð sem ég tek heilshugar undir.

Þess vegna er sérkennilegt að Sjálfstæðisflokkurinn skuli síðan ekki geta sagt með skýrum hætti hvernig hann ætlar að standa að bókun 35, sem snýst einmitt um að Ísland uppfylli skuldbindingar sínar samkvæmt þessum sama samningi og tryggja fólki og fyrirtækjum þau réttindi sem honum fylgja. Þegar ESA ákvað að höfða mál gegn Íslandi vegna innleiðingarinnar kaus formaður flokksins að svara því ekki hvort flokkurinn myndi greiða atkvæði með eða á móti frumvarpinu.

Það er ekki nóg að lýsa yfir ást á samstarfinu þegar það hentar. Samstarfi fylgir líka ábyrgð þegar á reynir. Vingulsháttur í pólitík er ekki í þágu íslenskra hagsmuna.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: