Alþingi:
Desemberuppbót:
Ragnar Þór Ingólfsson hefur lagt fram frumvarp um breytingar á lögum um almannatryggingar. Í greinargerð, með frumvarpinu, er meðal annars þetta að finna:

„Eins og sést í töflunni er gert ráð fyrir að stærsti hópurinn sem kemur til með að fá eingreiðslu í desember 2026 verði ellilífeyrisþegar og að þeir verði um 17.400 talsins eða nær helmingur allra sem áætlað er að muni fá umrædda eingreiðslu. Áætlað er að þar á eftir komi örorkulífeyrisþegar og að þeir verði um 13.500 talsins. Loks er áætlað að um 7.200 sjúkra- og endurhæfingargreiðsluþegar muni fá umrædda eingreiðslu.
Ef litið er til þeirra sem gert er ráð fyrir að fái óskerta eingreiðslu er um að ræða um 19.200 einstaklinga og eru örorkulífeyrisþegar fjölmennastir í þeim hópi eða um 8.800 talsins. Þar á eftir er áætlað að um 6.500 sjúkra og endurhæfingargreiðsluþegar komi til með að fá umrædda eingreiðslu óskerta og um 3.900 ellilífeyrisþegar. Í hópi þeirra sem fá örorku-, hlutaörorku- eða ellilífeyri eða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur frá Tryggingastofnun er hlutfall kvenna um það bil 60% en hlutfall karla er um 40%. Í ljósi þess má ætla að frumvarpið muni hafa meiri áhrif á konur en karla verði efni þess lögfest óbreytt.
Frumvarpið þetta hefur í för með sér fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð, verði það óbreytt að lögum, og nemur sú fjárhæð fyrir árið 2026 um 2 milljörðum kr. Ekki er gert ráð fyrir að breytingar á lögunum í tengslum við greiðslu orlofs- og desemberuppbótar hafi aukinn kostnað í för með sér fyrir ríkissjóð.“