Seðlabankastjóri hefur varað við því að verðhömlur leysi ekki skortinn og geti gert illt verra
Alþingi:
Guðrún Hafsteinsdóttir spurði Kristrúnu Frostadóttur á Alþingi fyrr í dag:

Guðrún: „Ríkisstjórnin hefur lagt fram frumvarp um svokallaða leigubremsu. Nafnið gefur fyrirheit um að halda aftur af húsaleigu og létta undir með fólki en það skiptir öllu máli hvort leigjendur verði í raun betur settir þegar upp er staðið. Í nýlegri grein í Financial Times er fjallað um húsnæðisvandann á Spáni. Þar er bent á að húsnæðisskorturinn sé rót vandans, hömlur á leigu geti verndað þá sem þegar hafa samning en um leið gert öðrum erfiðara fyrir að finna sér heimili. Það er einmitt fólkið sem við megum ekki gleyma, unga fólkið sem kemst ekki að heiman, fjölskyldan sem þarf stærra húsnæði. Hvað verður um það ef íbúðunum sem standa til boða fækkar? Við Sjálfstæðismenn viljum að fólk hafi raunverulegt val um að eiga eða leigja. Til þess þarf að fjölga íbúðum, auka lóðaframboð og ryðja hindrunum úr vegi þeirra sem vilja byggja. Fleiri íbúðir og meiri samkeppni styrkja stöðu leigjenda. Seðlabankastjóri hefur varað við því að verðhömlur leysi ekki skortinn og geti gert illt verra. Samt var frumvarpið lagt fram án þess að fara í samráðsgátt og að sögn seðlabankastjóra hafði bankinn ekki fengið það til umsagnar. Hæstv. forsætisráðherra segist ekki hafa áhyggjur af útfærslunni. Þá hlýtur hún að geta útskýrt hvað það er í þessari útfærslu sem á að koma í veg fyrir að leigan verði einfaldlega hærri í upphafi eða að færri íbúðir verði boðnar til leigu. Hvaða greining hefur sannfært forsætisráðherra um að þessi leið bæti stöðu leigjenda og hvaða reynsla af sambærilegum reglum styður niðurstöðu hennar?“

Kristrún: „Ég vil þakka háttvirtum þingmanni fyrir góða spurningu og gott að við fáum þetta mál inn í þingið, mál sem hefur verið kallað eftir í langan tíma og fær nú uppbyggilega umræðu. Mig langar að byrja á að segja að tilgangur og markmið þessa frumvarps er ekki eitt og sér eða í raun að knýja niður leiguverð. Við vitum að það mun ekkert gerast nema það verði almennileg festa á leigumarkaði með stærri faglegum félögum sem horfa til lengri tíma á leigumarkaði og með stækkun almenna íbúðakerfisins sem þessi ríkisstjórn er að stuðla að núna, bara síðast með aðgerðalista í tengslum við kjarasamninga. Við búum við þá stöðu á íslenskum leigumarkaði, ólíkt því sem stundum er haldið fram, að við erum engan veginn í takti við til að mynda norræna líkanið. Hér er ekki bara lítið af félagslegu húsnæði heldur líka lítið af leiguhúsnæði fyrir fólk sem er undir meðaltekjum og er að stíga sín fyrstu skref, ekki endilega fólk sem er alla ævi á leigumarkaði.
Hugmyndin á bak við þetta frumvarp og markmið þess er fyrst og fremst fyrirsjáanleiki. Það er ekki sjálfgefið að það séu mánaðarlegar hækkanir í takt við hvert og eitt skot eða breytingar á verðbólgu. Í öðru lagi snýst þetta auðvitað um að það verði boðið upp á — það er hægt að setja reglulegar hækkanir á leiguhúsnæði sem eru þá í takt við undirliggjandi verðþróun. Spurningin er bara þessi festa sem felst í því að það er ekki verið að breyta verðinu í hverjum og einum mánuði þannig að þetta snýst ekki um leiguþak. Það er ekki verið að knýja niður leiguna, það þarf að gerast yfir lengri tíma að reyna að halda aftur af leiguverðshækkunum með bara auknu framboði. Ég er sammála háttvirtum þingmanni hvað það varðar að við þurfum að tryggja framboðið. Það er m.a. gert með því að gefa í í stofnframlagakerfinu eins og var gert núna í nýliðnum kjarasamningum og með aðgerðalista stjórnvalda þar sem við erum að taka aukna ábyrgð á almenna íbúðakerfinu og svo fleiri úrræði t.d. í hlutdeildarlánakerfinu og annað slíkt. Þetta frumvarp er auðvitað bara eitt púsl sem kemur inn á þennan markað og það eru fyrirmyndir víða, til að mynda í Danmörku.“