- Advertisement -

Sparifé efnafólks hefur aukist um 300 milljarða frá 2024

Stefán Ólafsson skrifaði:


„Í umhverfi hávaxta berjast skuldugar fjölskyldur (oftar yngra fólkið) við að ná endum saman en þau efnameiri njóta lífsins og græða á háum vöxtum á sparifé sínu.

Sá hluti sparifjár efnafólks sem liggur á innlánsreikningum í bankakerfinu hefur aukist um 300 milljarða sl. tvö og hálft ár. Það er um 30% aukning. Sparifé sem geymt er í hlutabréfum, skuldabréfum og fasteignum er svo til viðbótar.

Á sama tíma hefur yfirdráttur heimila þeirra sem eru í basli aukist um rúmlega 10%. Svona er byrðum verðbólgunnar misskipt.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: