- Advertisement -

30 prósent fari á markað og myndi þar með verð fyrir allan aflann

Alþingi: Grétar Már Jónsson boðaði nýtt frumvarp um verðmat á fiski. Hann segir þá leið vera farna í Færeyjum:

„Ég kem hingað upp að þessu sinni til að segja frá því að ég hyggst leggja fram frumvarp sem er með svipuðu sniði og Færeyingar hafa gert varðandi verðlagningu á fiski upp úr sjó; þ.e. að þegar skip kemur með 100 tonn að landi þá setur það 30 tonn inn á fiskmarkað og verðið sem fæst fyrir kílóið af þessum 30 prósent verður verðið sem verður látið gilda fyrir farminn,“ sagði Grétar Már Jónsson.

Hann hélt áfram og sagði:

„Ég vænti þess að þeir sem eru hlynntir því hérna í þinghúsinu að fá rétt verð fyrir afurðirnar muni berjast um að fá að vera meðflutningsmenn á þessu frumvarpi. Þá á ég kannski sérstaklega við Sjálfstæðismenn sem tala um lögmál markaðarins og frelsi til athafna og gjörða og rétt verð. Þetta þýðir hærra verð og hærri útsvarstekjur fyrir sveitarfélögin í formi útsvars. Þetta þýðir hærri hafnargjöld. Þetta þýðir hærri tekjur í tekjuskatt fyrir ríkið og þetta mun líka þýða að veiðigjöld verða hærri. Ég hvet þingheim til að berjast með því og vinna að því að þetta verði raunhæft, eins og vinir okkar og frændur í Færeyjum hafa gert með góðum gangi síðustu ár, og rétta af hallann sem við höfum.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: