Eins langar mig að spyrja aftur út í það hvort ráðherranefnd um efnahagsmál hafi fundað með Seðlabankanum.
Stefán Vagn Stefánsson.
Alþingi: „Verðbólga á Íslandi er enn yfir 5% og mánaðarhækkunin var mikil. Atvinnuleysi mælist 6,3% og hefur aukist um tæp 3 prósentustig á einu ári. Horfurnar eru því miður ekki góðar. Ríkisstjórnin hefur verið að kljást við verðbólgu allt sitt kjörtímabil og skuldir heimila og fyrirtækja hafa hækkað um tugi milljarða enda hefur hagstjórn ríkisstjórnar hæstv. forsætisráðherra einkennst af agaleysi og stefnuleysi. Já, virðulegur forseti, agaleysi og stefnuleysi. Varðandi agaleysið nefni ég að laun æðstu embættismanna hækkuðu um 5,7% á síðasta ári þegar ríkisútgjöld jukust um 9%. Einnig hafa vörugjöld hækkað sem og aðrir skattar. Með þessum aðgerðum er ríkisstjórnin að senda þau skilaboð að hún taki hagstjórnarhlutverk sitt ekki alvarlega og við finnum öll fyrir því í hækkun vaxta og sjálfir langtímakjarasamningarnir eru í hættu. Já, virðulegur forseti, þetta er ekki gott.“
Þannig talaði Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður Framsóknar. Hann hélt áfram:
„Ofan á þetta bætist stefnuleysi og við í Framsókn gagnrýndum launahækkanir sem forsætisráðherra stóð fyrir fyrir tæpu ári. Þá sagði forsætisráðherra að henni hugnaðist ekki að við værum árlega rétt fyrir þinglok að handstýra þessum launahækkunum. Tæpu ári seinna er forsætisráðherra kominn með frumvarp þar sem laun æðstu embættismanna hækka um 3,5%. Því langaði mig að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort ekki sé kominn tími til að hefja formlegar viðræður við aðila vinnumarkaðarins eins og við í Framsókn höfum lagt til í okkar efnahagstillögum. Eins langar mig að spyrja aftur út í það hvort ráðherranefnd um efnahagsmál hafi fundað með Seðlabankanum. Ég hef áður spurt, virðulegur forseti, en fékk loðin svör.“